Innlent

Lögregla stöðvaði dauðadrukkna ófríska konu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan hafði afskipti af konu í miðborginni í nótt sem gat vart gengið sökum ölvunar. Það vakti athygli lögreglumanna að hún var ólétt og kvaðst hún aðspurð vera komin um 7 mánuði á leið. Konunni var komið til læknisskoðunar og síðan til síns heima. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að rætt hafi verið við aðstandendur og barnaverndaryfirvöldum verður tilkynnt um þetta atvik.

Þá var líkamsárás tilkynnt á skemmtistað í höfðuðborginni, en þar var mjög ölvað sambúðarpar að rífast og maðurinn sá ástæðu til að slá konuna með þeim afleiðingum að hún féll í götuna. Hún var flutt í sjúkrabifreið á slysadeild. Mannnum var sleppt eftir viðræður við lögreglu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×