Þjóðarsátt í uppnámi 30. maí 2009 05:30 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. „
Það er ljóst að kjarasamningar hanga á bláþræði og líklegt að það slitni upp úr þessu endanlega," segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Aðilum vinnumarkaðarins tókst ekki að ná samkomulagi um launahækkanir þrátt fyrir langar fundarsetur í gær. Þjóðarsátt um áætlun í efnahags-, kjara-, og félagsmálum er í uppnámi. „Ætlunin var að sjá til botns í samskiptum okkar við atvinnurekendur varðandi launaliðinn en það er ljóst að það hefur ekki tekist. Það er mikill ágreiningur okkar á milli um tímasetningar," segir Gylfi. Fulltrúar í samninganefnd ASÍ funda með sínu fólki eftir helgi til að fara yfir stöðuna. Gylfi segir að lausatök ríkisstjórnar og Seðlabanka við stjórn efnahagsmála hafi ekki hjálpað samningsaðilum við að ná saman. Hugmynd Samtaka atvinnulífsins (SA) var að 13.500 króna hækkun lægstu launa, sem upphaflega átti að koma til 1. mars, kæmi til með tveimur jöfnum greiðslum 1. júlí og 1. nóvember. Eins að hækkun í byrjun næsta árs yrði frestað til 1. september. Verkalýðshreyfingin hefur hafnað henni. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að atvinnurekendur geti og muni ekki mæta kröfu ASÍ um að staðið verði við 13.500 króna hækkun 1. júlí. „Það liggur fyrir að við ráðum ekki við það. Það er ljóst að við erum á leiðinni á byrjunarreit." Hann segir að tilboði SA hafi verið ætlað að skapa sátt svo fólk og fyrirtæki geti horft til framtíðar af bjartsýni. „Það er ekki bara spurning um launin heldur efnahagsumgjörðina í heild sinni. Þetta snýst um að fyrirtækin þori að ráða fólk og fjárfesta." Litið hefur verið til samkomulags um launalið kjarasamninga sem grunn að þjóðarsátt. Vilhjálmur telur að án samkomulags við verkalýðshreyfinguna um laun séu forsendur svokallaðrar þjóðarsáttar í raun ekki lengur til staðar. „Allur sá stöðugleiki sem menn ætluðu að ná með sátt um kjarasamninga næst ekki og við höfum þá ekki sama vald á atburðarásinni eins og við hefðum annars haft." - shá
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fleiri fréttir Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Sjá meira