Innlent

Þjóðarsátt í uppnámi

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.

„Það er ljóst að kjarasamningar hanga á bláþræði og líklegt að það slitni upp úr þessu endanlega," segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Aðilum vinnumarkaðarins tókst ekki að ná samkomulagi um launahækkanir þrátt fyrir langar fundarsetur í gær. Þjóðarsátt um áætlun í efnahags-, kjara-, og félagsmálum er í uppnámi.

„Ætlunin var að sjá til botns í samskiptum okkar við atvinnurekendur varðandi launaliðinn en það er ljóst að það hefur ekki tekist. Það er mikill ágreiningur okkar á milli um tímasetningar," segir Gylfi. Fulltrúar í samninganefnd ASÍ funda með sínu fólki eftir helgi til að fara yfir stöðuna. Gylfi segir að lausatök ríkisstjórnar og Seðlabanka við stjórn efnahagsmála hafi ekki hjálpað samningsaðilum við að ná saman.

Hugmynd Samtaka atvinnulífsins (SA) var að 13.500 króna hækkun lægstu launa, sem upphaflega átti að koma til 1. mars, kæmi til með tveimur jöfnum greiðslum 1. júlí og 1. nóvember. Eins að hækkun í byrjun næsta árs yrði frestað til 1. september. Verkalýðshreyfingin hefur hafnað henni.

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að atvinnurekendur geti og muni ekki mæta kröfu ASÍ um að staðið verði við 13.500 króna hækkun 1. júlí.

„Það liggur fyrir að við ráðum ekki við það. Það er ljóst að við erum á leiðinni á byrjunarreit." Hann segir að tilboði SA hafi verið ætlað að skapa sátt svo fólk og fyrirtæki geti horft til framtíðar af bjartsýni.

„Það er ekki bara spurning um launin heldur efnahagsumgjörðina í heild sinni. Þetta snýst um að fyrirtækin þori að ráða fólk og fjárfesta."

Litið hefur verið til samkomulags um launalið kjarasamninga sem grunn að þjóðarsátt. Vilhjálmur telur að án samkomulags við verkalýðshreyfinguna um laun séu forsendur svokallaðrar þjóðarsáttar í raun ekki lengur til staðar.

„Allur sá stöðugleiki sem menn ætluðu að ná með sátt um kjarasamninga næst ekki og við höfum þá ekki sama vald á atburðarásinni eins og við hefðum annars haft." - shá










Fleiri fréttir

Sjá meira


×