Innlent

Eldur í Herdísi SH í morgun

Patreksfjörður.
Patreksfjörður. MYND/Flokalundur.is

Tveir sjómenn sluppur heilir á húfi og var síðan bjargað yfir í annan bát, eftir að eldur gaus skyndilega upp frammi í lúkar á handfærabátnum Herdísi SH þegar báturinn var staddur um 12 sjómílur út af Blakksnesi, sunnan við Patreksfjörð, á sjötta tímanum í morgun. Skipverjar voru þá aftur á bátnum að skaka og rétt náðu þeir að senda út neyðarkall áður en þeir blésu út björgunarbát og forðuðu sér frá borði brennandi bátsins.

Línubáturinn Núpur var þar skammt frá og hélt þegar á vettvang og tók mennina um borð en þá var Herdís alelda og brunnin niður að sjólínu. Hún sökk skömmu síðar. Skipverjarnir voru svo fluttir yfir í fiskibátinn Birtu, sem flutti þá í land á Patreksfirði. Eldsupptök eru ókunn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×