Íbúðalánasjóður á fjórfalt fleiri íbúðir en í byrjun síðasta árs 12. apríl 2009 18:45
Íbúðalánasjóður á nú nærri fjórfalt fleiri íbúðir sem hann hefur eignast á nauðungarsölu, en í byrjun síðasta árs. Í byrjun árs 2008 átti Íbúðalánasjóður um fimmtíu fasteignir, sem sjóðurinn hafði eignast á nauðungarsölu. Um síðustu áramót var sú tala komin upp í 200 og hefur íbúðunum fjölgað enn meira frá þeim tíma, en að sögn Guðmundar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, eru nú um 230 íbúðir í eigu sjóðsins. Hér er því um nær fjórföldun að ræða á milli ára. Á vef Íbúðalánasjóðs má sjá þær fasteignir sem eru til sölu hjá sölumönnum sjóðsins, en þær eru 65 talsins, og eins og sjá má hér eru þær staðsettar um allt land. Mismuninn á fjöldanum sem sjóðurinn á annars vegar og hins vegar fjölda íbúða til sölu má skýra með því að sumar íbúðir eru í útleigu auk þess sem í einhverjum tilfellum búa fyrri eigendur í íbúðunum ennþá. Að sögn Guðmundar mátti merkja mikla aukningu á nauðungarsölum í haust í kjölfar bankahrunsins en íbúðum sem sjóðurinn eignaðist á nauðungarsölu fjölgaði þó jafnt og þétt á síðasta ári. Í lok mars tók gildi breyting á lögum um nauðungarsölu en nú er hægt að óska eftir því við sýslumann að nauðungarsölu á húsnæði verði frestað fram yfir 31. október 2009. Íbúðum í eigu Íbúðalánasjóðs mun því líklegast ekki fjölga mikið meira á næstu mánuðum, en þó má búast við að þeim fjölgi aftur eftir 31. október.
Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Fleiri fréttir Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Sjá meira