Margar slysagildrur í íbúðahverfum 27. maí 2009 06:00 Slysagildra við Blómvang í Hafnarfirði. Þarna átti slys sér stað síðastliðinn laugardag. Eins og sjá má er engin leið fyrir ökumann að sjá vegfaranda sem kemur af göngustígnum, sem er handan við hvíta vegginn, fyrr en um seinan.
Víða í íbúðahverfum á höfuðborgarsvæðinu leynast hreinar slysagildrur fyrir börn sem fara um á hjólum, hlaupabrettum eða tveimur jafnfljótum. Þetta er mat Einars Magnúsar Magnússonar frá Umferðarstofu, Valgarðs Valgarðssonar og Margeirs Sveinssonar frá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í síðustu viku urðu tvö alvarleg slys í íbúðahverfum, í öðru tilfellinu var ekið á dreng sem fór hlaupandi milli tveggja kyrrstæðra bíla í Steinási í Garðabæ. Honum er nú haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæslu Landspítalans. Hitt var í Blómvangi í Hafnarfirði en þá var ekið á dreng sem kom á hlaupahjóli niður göngustíg sem lá þvert á akbraut. Þremenningarnir segja að eins og aðstæður eru þar sem slysið varð er vonlaust fyrir ökumann að bregðast þegar barn kemur rakleiðis af göngustígnum og út á götu. „Viðbragðstíminn er nánast enginn," sagði Einar Magnús þegar hann skoðaði vettvang með blaðamanni. „Ökumaður sér ekki vegfarandann fyrr en tveir eða þrír metrar eru á milli þeirra." Margeir sá svo marga agnúa á göngustígnum að hann sagðist telja réttast að loka honum og vísa gangandi umferð eitthvert annað. „Þetta er afar óheppilegt því svo er leiksvæði hérna rétt fyrir ofan," sagði hann og benti upp stíginn. Valgarður og Margeir höfðu gert athugun á nokkrum íbúðahverfum og séð svo ekki var um villst að slysagildra sem þessi er ekkert einsdæmi. Þeir hvetja bæjar- og borgaryfirvöld til að setja girðingu meðfram stígunum og síðan tálma þar sem þeir mæta götunni svo að barn sem komi á ferð verði að hægja á sér áður en það fer út á götu. Heppilegast væri að tálmarnir vísuðu þannig að barnið yrði að snúa sér í átt að umferð þegar það er komið að götunni. Þremenningarnir hvetja síðan alla ökumenn til að hafa aðgát en flestir eiga það til að keyra hraðar þegar veðrið hlýnar en með hlýnandi veðráttu eykst einnig umferð hjólandi barna. jse@frettabladid.is
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Innlent Fleiri fréttir Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Sjá meira