Sterkari króna lækkar Icesave-skuldbindingar Heimir Már Pétursson skrifar 7. júní 2009 19:03
Ef gengi íslensku krónunnar styrkist um eitt prósent myndi það lækka skuldbindingar Íslendinga vegna Icesave um rúma sex milljarða. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að öll gögn varðandi Icesave samningana verði gerð opinber. Fjármálaráðherra flytur Alþingi á morgun skýrslu um Icesave samkomulagið. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir það varfærnislegt mat að eignir Landsbankans dugi fyrir 75 prósentum af skuldbindingunum vegna Icesave. Þær gætu staðið undir meiru. Þá sé mikilvægt að lánstíminn sé langur og þannig verði meiri líkur á að verðmæti eignanna aukist. Með hverju prósentustigi sem gengið styrkist lækki skuldbinding Íslendinga um 6,5 milljarða. Jóhanna segir að ef samið hefði verið á þeim nótum sem lágu fyrir í samningsdrögum fyrir áramót, hefði þurft að greiða 40 milljarða króna í vexti strax á þessu ári, sem hefði verið mjög erfitt fyrir ríkissjóð að reiða fram í gjaldeyriskreppunni. Fjármálaráðherra vísaði því á bug að pukrast hefði verið með þetta mál og það yrði að lokum Alþingi sem þyrfti að samþiggja ríkisábyrgð vegna samkomulagsins.Atli GíslasonMynd/GVAÞað er ljóst að mörgum þingmönnum Vinstri grænna á eftir að reynast erfitt að greiða atkvæði með samkomulaginu á Alþingi. Atli Gíslason þingmaður Vinstri grænna er í leyfi frá þingstörfum og hefur ekki séð samkomulagið í smáatriðum. Hann sagði í samtali við fréttastofu í dag að hann hefði fyrirvara um stuðning við ríkisábyrgð vegna málsins og væri enn þeirrar skoðunar að þarna væri um ólögmæta nauðungarsamninga að ræða. Réttast hefði verið að fara dómstólaleiðina með málið. Steingrímur segist ekki geta lofað stuðningi allra þingmanna Vinstri grænna fyrir þeirra hönd. Það sé rétt að málið sé óvinsælt og erfitt. „Það er enginn ánægður með það að Ísland þurfi að sitja upp með þessar skuldbindingar," segir Steingrímur. Hann treysti því að það verði nægjanlegur þingmeirihluti fyrir þeim afmarkaða þætti málsins að veita ríkisábyrgðina. Forsætisráðherra segist reikna með að allir þingmenn Samfylkingarinnar styðji málið og jafnvel einhverjir þingmenn stjórnarandstöðunnar. Alþingi hafi samþykkt ályktun um að fela ríkisstjórninni að fara í þessa samninga. Það hafi ekki verið margir kostir í stöðunni.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Sjá meira