Ég hef verið bænheyrður 1. október 2009 07:00 Emilíana Torrini er að gera það gott á meginlandinu. Þarna glittir líka í Pétur Hallgrímsson gítarleikara. mynd/gaukur úlfarsson
Gaukur Úlfarsson fylgir Emilíönu Torrini eftir á Evróputúr hennar. Hann er að gera mynd um tónleikaferðina og er afar ánægður að hafa fengið að komast aðeins burt frá Íslandi. „Ég er að gera mynd um túrinn, en þetta verður engin venjuleg dagbókarmynd, heldur annað konsept,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Gaukur Úlfarsson, sem nú þeysir um Evrópu í fylgdarliði Emilíönu Torrini. „Ég er að gera þessa mynd fyrir Emilíönu og útgáfufyrirtækið hennar, Rough Trade. Ég stefndi að því að myndin yrði tilbúin í janúar en á þessari fyrstu viku er ég búinn að filma svo mikið að mér líst orðið ekkert á það plan lengur.“ Emilíana hefur verið dugleg að spila síðustu misserin, en eiginlegur Evróputúr hennar hófst á fimmtudaginn fyrir viku. Gaukur hefur tekið upp efni í Hollandi, Þýskalandi og í Frakklandi. Í gærkvöldi voru tónleikar í Brussel. Svona heldur túrinn áfram um alla Evrópu til 21. október. Þá hættir Gaukur að elta bandið en Emilíana heldur áfram að spila út árið. „Emilíana er orðin nokkuð vinsæl í Evrópu. Lagið „Jungle Drum“ var í efsta sæti vikum saman, ekki bara í Þýskalandi heldur líka í Austurríki, Sviss og í fleiri löndum sem við ferðumst til,“ segir Gaukur. „Hún er að spila á 1.000-1.500 manna stöðum og það er alltaf uppselt. Mjög glæsilegt, allt saman. Mér finnst Emilíana ákveðin í að halda sér niðri á jörðinni miðað við umfangið á þessu.“ Mikið Íslendingastóð er í kringum Emilíönu. Lay Low hitar upp og Pétur Hallgrímsson spilar með henni. Pétur spilar líka með Emilíönu, sem og Sigtryggur Baldursson, og Lay Low spilar á bassa í sumum lögunum með Emilíönu. „Það er mjög skemmtilegt að vera á svona túrum, sérstaklega þegar maður er með frábæru fólki. Rútan ruggar manni í svefn og svo vaknar maður í nýrri borg á hverjum morgni,“ segir Gaukur, sem er vanur túralífinu. Hann spilaði á bassa með Quarashi, sem fór í allt upp í hálfs árs túra í sínu meiki. En saknar hann ekki Íslands og umræðunnar um Icesave? „Nei, við skulum orða það þannig að ég hafi verið bænheyrður að komast á þennan túr,“ segir Gaukur og flissar í steikjandi hitanum í Frakklandi. drgunni@frettabladid.is
Mest lesið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Osaka best klædd á Wimbledon Tíska og hönnun Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Leikarapar selur í 101 Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Sjá meira