Verð geisladiska hefur lítið hækkað í 20 ár 23. desember 2009 05:30 Lækkandi verð Í kringum 1991 voru geisladiskar og bækur á svipuðu verði. Nú er hægt að fá tvo diska fyrir andvirði einnar skruddu.
Útsöluverð íslenskra geisladiska hefur lítið hækkað síðan árið 1991, en raunverð hefur lækkað, miðað við almenna verðþróun. Árið 1991 kostuðu þeir um tvö þúsund krónur stykkið en í ár í kringum 2.500. Hefðu íslenskir diskar fylgt vísitölu neysluverðs myndu þeir kosta hátt í 4.600 krónur í ár. „Árið 1991 voru nýjar bækur og nýir diskar á svipuðu verði. Nú geturðu fengið tvær plötur fyrir eina bók, og þú lest bókina bara einu sinni!" segir Lárus Jóhannesson í versluninni 12 tónum. Hljómdiskar ættu því að vera í sterkri stöðu. Ásmundur Jónsson, formaður Félags hljómplötuframleiðenda, skýrir stöðugleika verðlags innlendra platna síðustu ár helst með samkeppni við ólöglegar niðurhalssíður: „Myndir þú kaupa mjólkina ef hún væri ókeypis?" Hann tekur ekki undir að diskarnir hafi einfaldlega verið of dýrir árið 1991. Því fylgi mikill kostnaður að setja nýja plötu á markað. Í ár virðist vera svolítill samdráttur í plötusölu fyrir jólin, miðað við sölu þrjátíu vinsælustu titlanna. Ásmund grunar að salan dreifist á fleiri titla en áður. Baldvin Esra Einarsson, útgefandi hjá Borginni og Kima, segir söluna góða. Sumar plötur seljist mun betur en við var búist. Hann nefnir einnig að salan sé dreifðari, jaðarplötur seljist vel. Hljómplötuframleiðendur og verslanir leggi nokkuð minna á vörurnar en áður. „Við viljum halda plötuverði þannig að fólk ráði við að kaupa þær," segir hann. Verð hafi hækkað um tíu til fimmtán prósent, sem sé ekki óeðlilegt miðað við verðlagshækkanir og dýrari erlendan kostnað. Eftir gengishrun eru innfluttir diskar talsvert dýrari en innlendir og kosta á milli þrjú og fjögur þúsund krónur. Ásmundur Jónsson segir að í kjölfar hruns hafi innflutningur snarminnkað og innlend tónlist hafi náð um 65 prósentum af sölunni: „Mér sýnist að það hlutfall eigi ekki eftir að breytast erlendum diskum í vil." Lárus Jóhannesson segir erlenda plötusölu í sinni búð svipaða og í fyrra. Verslun hans sé þó eilítið sér á báti, enda fáist þar tónlist sem erfitt sé að finna annars staðar. klemens@frettabladid.is Baldvin Esra Einarsson Segir hljómplötuiðnaðinn halda aftur af verðhækkunum. Salan gangi glimrandi vel. Lárus Jóhannesson Telur vægi íslenskrar tónlistar í heildarplötusölu vera um sjötíu prósent. Salan í ár sé svipuð og í fyrra. ásmundur jónsson Segir samdrátt í sölu vinsælustu platna, en líklegt sé að salan dreifist á fleiri en í fyrra.
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira