Hátíðir í haust 25. júní 2009 03:15 kvikmyndir Frá Nordisk Panorama fyrir fimm árum. Bíó í sundi.
Kvikmyndahátíðir haustsins verða með fjörlegra móti og er ekkert lát á þótt þrengist hagur múgamanna: Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík verður haldin í sjötta sinn dagana 17.–27. september. Sýndar verða hátt í 100 kvikmyndir, heimildarmyndir jafnt sem leiknar, nýjar og framsæknar kvikmyndir í bland við verðlaunamyndir frá kvikmyndahátíðum víða um heim. Þegar hefur verið opnað fyrir umsóknir kvikmynda á Alþjóðlega kvikmyndahátíð í ár en umsóknarfrestur rennur út 15. júlí næstkomandi. Athygli er vakin á því að hátíðin óskar sérstaklega eftir íslenskum stutt- og heimildarmyndum en tekið er við kvikmyndum í fullri lengd frá öllum heimshornum. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar um hátíðina má finna á nýrri og endurbættri heimasíðu: www.riff.is. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur vaxið ótrúlega síðustu ár. Ríflega 20.000 Íslendingar sóttu hana á síðasta ári auk hundraða alþjóðlegra gesta. Hin hátíðin sem skellur á hvítum tjöldum Reykjavíkur í haust er Nordisk Panorama: fimm borga hátíð norrænna kvikmyndagerðarmanna með heimildar- og stuttmyndum. Hún er komin aftur til Reykjavíkur og verður haldin dagana 25.–30. september. Er þetta í tuttugasta sinn sem hátíð er haldin. Hátíðin býður upp á einstakt tækifæri til þess að taka púlsinn á norrænni kvikmyndgerð og vera fyrstur til að sjá nýjar myndir eftir þekkta leikstjóra og óuppgötvað hæfileikafólk. Fjöldi alþjóðlegra þekktra norrænna leikstjóra hefur þreytt frumraun sína á Nordisk Panorama og er hátíðin mikilvægur stökkpallur fyrir unga kvikmyndagerðarmenn. Aðalsýningar Nordisk Panorama eru hluti af efnisskrá keppninnar sem fram fer á hátíðinni. Sú dagskrá felur í sér sýningu á um það bil 80 nýjum stutt- og heimildarmyndum og er stór hluti þeirra mynda sýndur í fyrsta sinn á hátíðinni alþjóðlegum áhorfendum. Keppt er um þrenn verðlaun, besta norræna stuttmyndin, besta norræna heimildamyndin og nýjar norrænar raddir. Skráningu mynda á hátíðina er nú lokið en dagskráin er ekki tilbúin. Samsíða hátíðinni eru tveir mikilvægir og spennandi atburðir skipulagðir. Þeir eru Fjármögnunarmessan og Markaðurinn en á þeim gefst einstakt tækifæri fyrir kvikmyndagerðarmenn að kynna nýjar hugmyndir í þróun, dreifa myndum sínum og fjármagna ný verkefni. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Lífið Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið Ráðherrabarn komið í heiminn Lífið Furðubandið sem tryllti netið Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Lífið „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Lífið Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Tíska og hönnun Fleiri fréttir Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Sjá meira