Óverjanleg staða Rúnars í Grímunefnd 4. júní 2009 07:00 Óheppilegt Jón Viðar hefur efasemdir um fyrirkomulag við útnefningar.
Leiklistarverðlaunin Gríman eru í hálfgerðu uppnámi eftir að upp komst að Rúnar Guðbrandsson, leikstjóri og höfundur sýningarinnar Steinar í djúpinu, sat í valnefnd Grímunnar. Rúnar hefur sagt af sér og beðið þess að atkvæði hans verði gerð ógild: „Heiður Grímunnar gengur fyrir í einu og öllu, sem og þeirra listamanna sem hafa unnið með mér að sýningunni Steinar í djúpinu,“ segir í yfirlýsingu frá Rúnari. Málið hefur þó frekari eftirköst því samkvæmt Sigurði Kaiser, framkvæmdastjóra Grímunnar, hafa bæði stjórn Leiklistarsambands Íslands og fulltrúaráð LSÍ fundað um málið og hefur þótt ástæða til að bregðast við setu annarra í valnefnd. Þá segir hann að starfshópur vinni að því að meta verkferlana fyrir næsta leikár. Ekki hafa þó fengist upplýsingar um hverjir aðrir sitja í nefndinni. Blóraböggull Rúnar Guðbrandsson hefur sagt sig úr valnefnd Grímunnar. „Breytir þetta einhverju í raun?“ spyr Jón Viðar Jónsson, leikhúsgagnrýnandi. „Breytir það því að sýningin hans fær flestar tilnefningar? En þessi ákvörðun er skynsamleg, ég held að Rúnar hafi verið í alveg óverjanlegri stöðu. Ég hef lengi haft miklar efasemdir um þetta fyrirkomulag á útnefningum til Grímunnar,“ segir Jón Viðar. „Það verður alltaf hægt að deila um verðlaun og viðurkenningar og því er ákaflega mikilvægt að vel sé staðið þar að.“ Formaður Félags leikstjóra á Íslandi og ritari Leiklistarsambandsins, Steinunn Knútsdóttir, sagði í samtali við Fréttablaðið að skipun Rúnars í nefndina hefði verið samkvæmt starfsreglum. „Það var því enginn sem gerði neitt rangt, hvorki hann né Félag leikstjóra. Það er ekkert sem bendir til þess að eftir afsögn hans sé neitt sem kastar rýrð á ákvörðunartökuna, þá sem eru tilnefndir eða þá sem hljóta vinninga.“ - kbs
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Bíó og sjónvarp Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira