Fíkn gerir ekki mannamun 28. júní 2009 15:35 Í nóvember 2007 var skrifað undir samkomulag um sérstak forvarnastarf í samstarfi við nemendur. Verkefnið var unnið á vegum styrktarsjóðs Susie Rutar. Mynd/GVA
Styrktarsjóður Susie Rutar Einarsdóttur sem lést um miðjan júní árið 2007 frumsýnir á morgun forvarnarauglýsingu sem ætlað er að sína að fíkn gerir ekki mannamun. „Það skiptir ekki máli hvert þú ert eða hvaða þú kemur. Hver sem er getur orðið fíkn að bráð," segir í tilkynningu. Styrktarsjóðurinn var stofnaður fáeinum dögum eftir andlát Susie að frumkvæði föður hennar og er skipaður vinum Susie úr öllum áttum. Sjóðnum er ætlað að styðja við verkefni sem stuðla að forvörnum gegn notkun fíkniefna meðal ungs fólks í áhættuhópum. Nú hefur styrktarsjóðurinn ráðast í stærsta verkefni sitt til þessa það er gerð forvarnarauglýsinga í samstarfi við Filmus. Í tilkynningu segir að fjölskyldur fólks sem látist hafa af völdum fíknar lögðu sjóðnum lið við gerð auglýsingarinnar og leyfðu áhorfendum að kynnast látnum ástvinum sínum. Að mati sjóðsins er viðhorf til fíkniefna alltof léttvægt meðal ungs fólks, mikið af ungu fólki sem noti fíkniefni telji það vera skaðlausa skemmtun og að það sé sérstakt og ónæmt fyrir því að verða fíklar. „Við vonumst til að þess að hreyfa við fólki með þessum auglýsingum og sýna fram á að fíkniefnaneytendur eru ósköp venjulegar manneskjur," segir í tilkynningu. Þá segir að styrktarsjóðurinn vilji afmá ákveðna staðalmynd af fíkniefnaneytendum en sú hugmynd sé algeng í samfélaginu að ákveðnar týpur verði fíklar. Að fíklar komi úr slæmum fjölskyldum, hafi vegnað illa í lífinu áður en það fór að neyta efna og að fíkn stafi af almennri vanlíðan. „Fólk notar oft ekki fíkniefni af vanlíðan einni saman, margir byrjuðu bara í ‚góðu' partýi sem svo hættir að vera gott og tekur engan enda. Hugsunin þetta kemur ekki fyrir mig, ég verð ekki fíkill, er skaðleg og hefur oft áhrif á það að fólk ákveður að prófa að nota fíkniefni. Með auglýsingunum vill sjóðurinn koma því á framfæri að enginn velur að vera fíkill og enginn á að hugsa ‚ég verð ekki fíkill'," segir í tilkynningunni. Fjölmargir aðilar komu að þessu verkefni. Felix Bergson tók viðtölin við aðstandendur, Benni Hemm Hemm gaf tónlistina og Filmus vann þær mikið til í sjálfboðavinu. Auglýsingin verður frumsýnd í Hinu Húsinu á morgun klukkan fjögur.
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Fleiri fréttir „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Sjá meira