Venjulegar skuldir í hendur handrukkara 9. október 2009 04:00 Hafa fært út kvíarnar og ógna nú fólki til að innheimta lögmætar skuldir, svo sem vangoldna húsaleigu eða bílaskuldir, svo dæmi séu nefnd. Myndin er sviðsett.
Handrukkarar eru farnir að banka upp á hjá fólki til að rukka það um skuldir sem stofnað er til með lögmætum hætti. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tvö slík mál til rannsóknar. „Innheimta“ af þessu tagi hefur hingað til að mestu verið bundin við fíkniefnaskuldir eða skuldir sem eru tilkomnar með ólögmætum hætti og þá tengdar viðskiptum í fíkniefnaheiminum, en nú eru almennir borgarar farnir að verða fyrir barðinu á henni. Lögregla telur að svona málum eigi eftir að fjölga. Skuldir af þessu tagi eru til að mynda í formi vangoldinnar húsaleigu eða skulda vegna bílakaupa, svo dæmi séu nefnd, „Fyrirliggjandi eru upplýsingar hjá embættinu þess efnis að þessi þróun sé orðin að veruleika,“ segir Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri, spurður hvort vitneskja um handrukkanir vegna lögmætra skulda liggi fyrir hjá embættinu. Spurður hvort þessa iðju stundi einstaklingar eða hópar segir ríkislögreglustjóri embættið hafa upplýsingar um að þar sé bæði um að ræða einstaklinga og hópa sem þekktir séu úr undirheimunum. Ríkislögreglustjóri telur að í því erfiða efnahagsástandi sem nú ríki sé sú hætta fyrir hendi að svokölluðum handrukkunum, það sé innheimtu skulda með hótun eða beitingu ofbeldis, muni fjölga. „Fram til þessa hefur þess háttar innheimtustarfsemi aðallega tengst fíkniefnaskuldum, en nú eru vísbendingar um að slíkum aðferðum sé einnig beitt við innheimtu annarra og hefðbundnari skulda þegar viðtekin úrræði hafa ekki skilað árangri,“ segir ríkislögreglustjóri. Hann bendir jafnframt á að greiningardeild embættisins hafi strax í febrúar varað við þessari þróun samfara efnahagsástandinu sem nú ríkir í landinu. H araldur hvetur fólk sem verður fyrir slíkri refsiverðri háttsemi eindregið til að leita til lögreglu.
Mest lesið Leita týnds göngumanns Innlent Taka húfurnar úr sölu: Harma að „misheppnað grín“ hafi komið illa við fólk Innlent Hljóðfæraleikarar að óbreyttu á leið í verkfall Innlent Ökumenn mótorhjóla greiða meira en landsbyggðin minna Innlent Sjö hundruð landgönguliðar á leið til Los Angeles Erlent Newsom ætlar að kæra Trump Erlent Leita leiða til að auðvelda framsal fanga til heimalands síns Innlent Konan er fundin Innlent Nemar á Landspítalanum klæddust „Öldrunarbúningi“ Innlent Sannfærð um sakleysi eiginmannsins og segir hann hetjuna sína Erlent Fleiri fréttir Hljóðfæraleikarar að óbreyttu á leið í verkfall Leita týnds göngumanns Leita leiða til að auðvelda framsal fanga til heimalands síns Taka húfurnar úr sölu: Harma að „misheppnað grín“ hafi komið illa við fólk Nemar á Landspítalanum klæddust „Öldrunarbúningi“ Ökumenn mótorhjóla greiða meira en landsbyggðin minna Ástand í Kaliforníu og breytt frumvarp um kílómetragjald Tveir sjúkrabílar kallaðir út vegna bílslyss við Mjódd Sóttu veikan sjómann Konan er fundin Slökktu eld á svölum á fjórðu hæð í Engihjalla Ekki hægt að nota rafræn skilríki Mjög áhyggjufull yfir tilfærslu ráðuneytisins Frestun fjármagns til verkmenntaskóla, mótmæli í LA og fjölmenningarhátíð Komu í veg fyrir sýruleka á Akureyrarhöfn „Erum ekki að lýsa yfir stuðningi við Trump“ Þotur notaðar í flugi Icelandair til Nuuk Íslendingur á válista CIA árið 1970 Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Menningarveisla í allt sumar á Sólheimum Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Alvarlegt ástand í Los Angeles og opnun nýs Konukots Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Heilbrigðisstofnun Suðurnesja skilaði 800 milljónum til ríkissjóðs Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Hermenn í Los Angeles, mylguráðstefna og síðasti leikur Arons Pálmarssonar Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Sjá meira