Norrænir stjórnmálamenn gagnrýna áformaðar hvalveiðar harðlega 28. janúar 2009 15:16
Ákvörðun Íslendinga um að auka hvalveiðikvótann var gagnrýnd harðlega á fundi Norðurlandaráðs sem haldin er á Íslandi þessa dagana. Meðal annars er það tímasetning ákvörðunar um aukinn kvóta sem vekur athygli, ekki síst vegna fjármálakreppunnar. Þá er það gagnrýnt að ríkisstjórnin hafi samþykkt aukinn kvóta, daginn eftir að tilkynnt hafi verið að hún segði af sér, eftir því sem fram kemur á vef Norðurlandaráðs. „Hvalveiðar eru umdeildar bæði á Norðurlöndum og í heiminum öllum. Það er undarlegt að ríkisstjórn Íslands skuli ákveða að undirrita svo umdeildan samning í miðri fjármála- og stjórnarkreppu. Í slíkri pólitískri ringulreið ætti ekki að ræða mál sem þetta," segir Sinikka Bohlin, þingmaður frá Svíþjóð og forseti Norðurlandaráðs. Fundur Norðurlandaráðs er haldinn á Íslandi þessa dagana. Svíþjóð fer með formennsku í Norðurlandaráði sem er opinber samstarfsvettvangur þingmanna Norðurlandanna. Norræna ráðherranefndin, það er að segja samstarfsvettvangur ríkisstjórna Norðurlandanna hefur ekki tekið afstöðu til hvalveiða á Norðurlöndum. Um annað spendýr sem lifir í vatni, selinn, hefur þó verið mikið fjallað, meðal annars í ríkisstjórnum Norðurlandanna.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Erlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Sjá meira