Innlent

Minnir á hámark kostnaðar

Gísli tryggvason Talsmaður neytenda hefur minnt Lögmannafélagið á að hámark sé á innheimtukostnaði lögmanna.fréttablaðið/anton
Gísli tryggvason Talsmaður neytenda hefur minnt Lögmannafélagið á að hámark sé á innheimtukostnaði lögmanna.fréttablaðið/anton

Talsmaður neytenda hefur sent Lögmannafélagi Íslands ábendingu, hvar minnt er á að lögmenn séu bundnir af reglum um hámark innheimtukostnaðar. Innheimtulög og reglur um hámark innheimtukostnaðar eigi einnig við um lögmenn.

Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segir í ábendingunni að hún sé send að gefnu tilefni og er félagið beðið að árétta það við starfandi lögmenn. Rætt hafi verið óformlega við framkvæmdastjóra félagsins og vinsamlegast er mælst til þess að ábendingin sé birt á vefsvæði Lögmannafélagsins.- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×