Framsóknarboð Óskars: Braut engar reglur Breki Logason skrifar 17. febrúar 2009 19:35 Óskar Bergsson
Óskar Bergsson formaður borgarráðs segir engar reglur hafa verið brotnar þegar hann hélt móttöku fyrir sveitastjórnarfulltrúa framsóknarflokksins sem sátu ráðstefnu á vegum flokksins í Ráðhúsinu. Hann segir engar athugasemdir hafa verið bókaðar í forsætisnefnd vegna málsins og heyrði fyrst af þeim í dag. Hann vill ekki svara því til hvort hann ætli að segja af sér vegna málsins. „Það er mikilvægt að því sé haldið til haga að þetta er samkvæmt reglum. Við höfum heimildir til þess að halda móttökur og til okkar koma fjöldi félagasamtaka, grunnskólar og erlendir gestir svo eitthvað sé nefnt. Þetta er að hluta til í starfsskyldum Reykjavíkurborgar,“ segir Óskar. Á Vísi fyrr í dag kom fram að Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi vill að Óskar segi af sér vegna málsins. Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingar hefur einnig sagt að þau Svandís Svavarsdóttir hafi gert alvarlegar athugasemdir vegna móttökunnar í forsætisnefnd, auk þess sem málið hafi ekki verið lagt fram til samþykktar heldur kynningar í nefndinni. „Það er samkvæmt reglunum, forsætisnefnd er einungis upplýst um hvaða móttökur og fundir eru fyrirhugaðar og það er ekki lagt fram til samþykktar. Hinsvegar lögðu þau ekki fram neina bókun eða gerðu formlegar athugasemdir. Ég var ekki á þeim fundi og fékk engar upplýsingar um að þau hefðu gert athugasemdir við málið fyrr en í dag,“ segir Óskar. Hann segir móttökur sem þessar hafa minnkað um þriðjung á árinu 2008. „Það er samt ekki þannig að þær móttökur sem eftir standa séu eitthvað óeðlilegar. Það er kannski vegna þess að þetta voru framsóknarmenn sem Ólafur F. Magnússon sér rautt í þessu yfirliti forsætisnefndar. Það hefur aldrei verið reynt að fela neitt í þessu og þetta hefur verið uppi á borðum síðan 4. Nóvember,“ segir Óskar. Óskar segir tilefni fundarins hafa verið að gera samherjum sínum grein fyrir því hvernig unnið sé að málum í Reykjavík eftir að nýi meirihlutinn tók við. Hann segir samstarfið með minnihlutanum hafa verið með ágætum. „Ég vildi því upplýsa mina kollega um það hvernig haldið væri á málum eftir að við náðum þverpólitískri samstöðu um aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar. Þetta var fundur sem lauk með síðdegisboði og það var alls ekki verið að halda neitt partý á mínum vegum,“ segir Óskar sem vill ekki svara því til hvort hann ætli að segja af sér vegna málsins. Um 25 framsóknarmenn voru í boðinu sem kostaði tæplega 90 þúsund krónur að sögn Óskars en þar var boðið upp á léttvín, bjór, gosdrykki og snittur. Óskar segir fordæmi fyrir álíka móttökum hjá öllum stjórnmálaflokkum að F-lista undanskildum og það hafi ekki verið gerðar neinar athugasemdir fram að þessu. Hann segir að Vinstrihreyfingin grænt framboð hafi haldið svipað boð árið 2004 þar sem 30-40 sveitarstjórnarmönnum flokksins hafi verið boðið í álíka boð. Hann hafi því talið sig vera í fullum rétti áður en hann hélt boðið og telur að svo sé enn. „Ef menn vilja breyta þessum reglum þá er það bara önnur umræða.“
Tengdar fréttir Ólafur krafðist afsagnar Óskars Bergssonar Ólafur F. Magnússon krefst þess að Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, segi af sér vegna þess sem að hann kallar misnotkun á mótttökustarfsemi og ýmsu öðru sem varði stjórn borgarinnar í tíð núverandi borgarstjórnar. 17. febrúar 2009 14:55 Óskar fékk leyfi forsætisnefndar fyrir framsóknarboði Borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, Óskar Bergsson lagði fram ósk á fundi forsætisnefndar borgarstjórnar á síðasta ári um að fá að halda gestamóttöku fyrir sveitarstjórnarfulltrúa Framsóknarflokksins. Það var samþykkt þann fjórða nóvember af nefndinni en það voru þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Dagur B. Eggertsson og Gísli Marteinn Baldursson sem samþykktu beiðni Óskars og reyndar fleiri móttökur. 17. febrúar 2009 16:19 Dagur og Svandís gagnrýndu veisluhöld Óskars Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, Dagur B. Eggertsson, segist hafa gagnrýnt áform Óskars Bergssonar vegna fundar sem hann hélt með sveitarstjórnarfulltrúum Framsóknarflokksins í Ráðhúsinu. 17. febrúar 2009 17:01 Mest lesið Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Innlent Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Innlent Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Innlent „Erum að horfa á eitthvað betra en vopnahlé“ Erlent Læknir játar að hafa gefið Perry ketamín Erlent Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax Erlent Skjálfti fannst í Hveragerði Innlent Drápu tugi sem biðu þess að fá mat Erlent Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Innlent Trump segir fólki að yfirgefa Tehran hið snarasta Erlent Fleiri fréttir Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Lágmarks lokanir í kringum Austurvöll á 17. júní Sjá meira
Ólafur krafðist afsagnar Óskars Bergssonar Ólafur F. Magnússon krefst þess að Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, segi af sér vegna þess sem að hann kallar misnotkun á mótttökustarfsemi og ýmsu öðru sem varði stjórn borgarinnar í tíð núverandi borgarstjórnar. 17. febrúar 2009 14:55
Óskar fékk leyfi forsætisnefndar fyrir framsóknarboði Borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, Óskar Bergsson lagði fram ósk á fundi forsætisnefndar borgarstjórnar á síðasta ári um að fá að halda gestamóttöku fyrir sveitarstjórnarfulltrúa Framsóknarflokksins. Það var samþykkt þann fjórða nóvember af nefndinni en það voru þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Dagur B. Eggertsson og Gísli Marteinn Baldursson sem samþykktu beiðni Óskars og reyndar fleiri móttökur. 17. febrúar 2009 16:19
Dagur og Svandís gagnrýndu veisluhöld Óskars Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, Dagur B. Eggertsson, segist hafa gagnrýnt áform Óskars Bergssonar vegna fundar sem hann hélt með sveitarstjórnarfulltrúum Framsóknarflokksins í Ráðhúsinu. 17. febrúar 2009 17:01