Innlent

Forsætisráðherra þakklát Ingimundi

Forsætisráðherra íhugar að kalla sérstaklega eftir svari frá Davíð Oddssyni, seðlabankastjóra, hvort hann hyggst láta af embætti. Davíð hefur hingað til virt óskir forsætisráðherra að vettugi.

Í bréfi sem forsætisráðherra sendi seðlabankstjórunum þremur á mánudag er þess óskað að þeir láti af embætti þar sem til stendur að endurskipuleggja bankann.

Óskaði forsætisráðherra ennfremur eftir svari frá bankastjórunum síðastliðinn fimmtudag. Bankastjórarnir Ingimundur Friðriksson og Eiríkur Guðnason svöruðu forsætisráðherra í gær. Ingimundur ætlar að láta af störfum og tekur uppsögn hans gildi á mánudaginn. Eiríkur ætlar hins vegar að sitja áfram í óþökk forsætisráðherra. Davíð Oddson Seðlabankastjóri hefur hins vegar ekki svarað bréfi forsætisráðherra.

„Ég er afar þakklát Ingimundi fyrir að bregðast við með þeim hætti sem hann hefur gert. Það er mjög virðingarvert að hann leggi okkur lið með þessum hætti. Bréf Eiríks er með þeim hætti að hann hefur ekki sagt af sér. Þannig að við þurfum að skoða það bréf og þann boðskap sem í því var og bregðast þá við. Síðan undrar það mig mjög að Davíð oddsson hafi enn ekki svarað þessum óskum.

Jóhanna segist ekki ætla að vera með neinar getgátur um það en hún telji að það sé mjög mikilvægt að hann svari einnig. Það sé mjög sérstakt að Davíð svari ekki bréfum sem komi frá forsætisráðherra. Svari Davíð ekki þá muni hún ítreka erindi sitt og kalla eftir svari.

Ekki náðist í Ingimund Friðriksson í dag en Eiríkur Guðnason baðst undan viðtali. Davíð Oddson hefur hingað til ekki látið ná í sig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×