Innlent

Óskar fékk leyfi forsætisnefndar fyrir framsóknarboði

Óskar Bergsson fékk leyfi forsætisnefndar fyrir framsóknaveislu.
Óskar Bergsson fékk leyfi forsætisnefndar fyrir framsóknaveislu.

Óskar Bergsson, formaður borgarráðs og borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, lagði fram ósk á fundi forsætisnefndar borgarstjórnar á síðasta ári um að fá að halda gestamóttöku fyrir sveitarstjórnarfulltrúa Framsóknarflokksins. Það var samþykkt þann fjórða nóvember af nefndinni en það voru þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Dagur B. Eggertsson og Gísli Marteinn Baldursson sem samþykktu beiðni Óskars.

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins og óháðra gagnrýnir Óskar fyrir að hafa misnotað móttökustarfsemina og krafðist þess á fundi borgarstjórnar í dag að hann segði af sér. Óskar frábað sér síendurtekin upphlaup Ólafs F. Magnússonar í borgarstjórn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×