Segja mannslífum stefnt í hættu 11. janúar 2009 10:12
Starfsmannafélag Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi mótmælir harðlega öllum hugmyndum um stórfellda sameiningu heilbrigðisstofnana, sem kynntar voru á fundi 7. janúar. Í tilkynningu frá félaginu segir að engin haldbær gögn hafi verið lögð fram sem sýni að um raunsparnað sé að ræða og engin fagleg rök hafi komið fram fyrir sameiningunni. Þjónusta við íbúana muni skerðast verulega og mannslífum sé stefnt í hættu. „Ætlun ráðherra er að keyra einhliða niðurskurð og skerðingu þjónustu í gegn án raunverulegs samráðs við heimamenn. Aðeins eru gefnir fáeinir dagar fyrir vinnuhópa að starfa og því litlir möguleikar fyrir fagaðila í hinum dreifðu byggðum að koma með betri tillögur en flausturslegar hugmyndir ráðuneytisins," segir í tilkynningunni. Félagið segir það öfugmæli hjá ráðherra að verið sé að auka öryggi og þjónustu við sjúklinga. Skipulagsbreytingarnar séu afturför, og auki ferðalög með sjúklinga um langan veg í misjafnri færð og veðrum. Þá bendir félagið á að heilbrigðisstofnunin á Blönduósi sé eina sjúkrastofnunin við þjóðveg 1 frá Reykjavík til Akureyrar og því sé öryggi vegfarenda skert með minni þjónustu þar. Þá spyrja félagsmenn hvort það sé verið að bjarga hallarekstri á Akureyri með því að færa starfsemina þangað. Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi hafi verið vel rekin. „Ekkert samráð hefur verið haft við heimamenn um þessi mál. Teljum við þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið allt frá því að fyrst var ákveðið að sameina stofnanirnar á Sauðárkróki og Blönduósi síðastliðið vor verulega ámælisverð og bera vott um lítilsvirðingu gagnvart starfsfólki Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi, sjúklingum og öðrum íbúum héraðsins. Við skorum á yfirvöld að endurskoða þessar tillögur að skipulagsbreytingum áður en lengra verður haldið," segir ennfremur í tilkynningunni.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira