Össur birtir ESB tillögu 14. maí 2009 18:08
Tillögudrög Össurar Skarphéðinssonar sem kynnt voru á fundi forystumanna stjórnmálaflokkanna í gær og á fundum utanríkisráðherra með formönnum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og fulltrúa þinghóps Borgara-hreyfingarinnar í dag hafa verið birt á vef Utanríkisráðuneytisins. Nokkur leynd hefur hvílt yfir tillögunni og voru formenn flokkanna bundnir trúnaði. Össur sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að drögin yrðu hugsanlega opinberuð í dag. Það hefur nú verið gert. Tillögudrögin hljóma svo: „Alþingi samþykkir að ríkistjórnin leggi inn umsókn um aðild að Evrópusambandinu og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning." Með tillögunni fylgir síðan greinargerð þar sem segir meðal annars að tillagan um aðildarumsókn til ESB sé lögð fram til þess að íslenska þjóðin fái tækifæri til að hafna eða samþykkja samning um aðild að Evrópusambandinu þegar hann liggur fyrir. Þá segir: „Umsókn að ESB jafngildir þannig ekki aðild enda er það íslensku þjóðarinnar að komast að endanlegri niður-stöðu hvað hana varðar. Samhliða verði lagt fram frumvarp til laga um þjóðaratkvæðagreiðslur um mikilvæg mál sem ríkisstjórn eða Alþingi ákveði að leggja fyrir þjóðina. Tillaga um umsókn og frumvarp til laga um þjóðaratkvæðagreiðslur verða lögð fram samhliða á vorþingi. Víðtækt samráð verður haft við hagsmunaaðila um samningsmarkmið fyrir viðræðurnar á ýmsum sviðum, s.s. sjávarútvegs, landbúnaðar- og byggðamála, á sviði almannaþjónustu, umhverfis- og jafnréttismála og gjald-miðilsmála og leitast við að ná sem breiðastri samstöðu um umræðugrundvöll viðræðnanna. Skoðað verður hvort unnt sé að ná fram samstarfi í gjaldmiðilsmálum samhliða viðræðum um hugsanlega aðild til að styðja við gengi krónunnar. Áhersla er lögð á opið og gagnsætt ferli og reglubundna upplýsingagjöf til almennings og hagsmunaaðila. Fagleg viðræðunefnd við ESB verður skipuð af ríkisstjórn Íslands. Henni til fulltingis verður breiður samráðs-hópur fulltrúa hagsmunaaðila sem nefndin leitar ráðgjafar hjá, og upplýsir jafnóðum um framvindu viðræðna. Ísland sem Evrópuþjóð vill leggja sitt af mörkum við uppbyggingu lýðræðislegrar Evrópu sem grundvallast á félagslegu réttlæti, jafnrétti og virðingu fyrir manngildi og umhverfi. Hlutverk Evrópu er að vera hornsteinn mann-réttinda í heiminum og ýta undir stöðuleika, sjálfbær þróun, réttlæti og velmegun um allan heim. Stjórnvöld áskilja sér rétt til að mæla með eða leggjast gegn samningnum þegar hann liggur fyrir enda eru settir margvíslegir fyrirvarar við hugsanlegan stuðning við málið. Meðal grundvallarhagsmuna Íslands eru: * Að tryggja forræði þjóðarinnar yfir vatns- og orkuauðlindum og ráðstöfun þeirra * Að tryggja forræði þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni, sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar og hlutdeild í deilistofnum og eins víðtækt forsvar í hagsmunagæslu í sjávarútvegi í alþjóðasamningum og hægt er. * Að tryggja öflugan íslenskan landbúnað á grundvelli fæðuöryggis og matvælaöryggis * Að tryggja lýðræðislegan rétt til að stýra almannaþjónustu á félagslegum forsendum * Að standa vörð um réttindi launafólks og vinnurétt. Alþingi meti hvort setja skuli sérstaka Evrópunefnd Alþingis með fulltrúum allra stjórnmálaflokka er fari með samskipti við viðræðunefnd vegna ESB, en viðhorf stjórnarflokkanna er að það sé heppilegt."
Tengdar fréttir ESB-ályktun hugsanlega opinberuð í dag Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um aðildarviðræður við Evrópusambandið verður hugsanlega opinberuð í dag, en hún verður lögð fyrir Alþingi í næstu viku. Lítið ber á milli ríkisstjórnarinnar og framsóknarmanna í málinu. Þetta segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa furðað sig á því af hverju leynd ríki yfir þingsályktuninni. Össur segist ekki hafa viljað láta ályktunardrögin fara frá sér fyrr en að hafa rætt þau við forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna. 14. maí 2009 17:12 Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Sjá meira
ESB-ályktun hugsanlega opinberuð í dag Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um aðildarviðræður við Evrópusambandið verður hugsanlega opinberuð í dag, en hún verður lögð fyrir Alþingi í næstu viku. Lítið ber á milli ríkisstjórnarinnar og framsóknarmanna í málinu. Þetta segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa furðað sig á því af hverju leynd ríki yfir þingsályktuninni. Össur segist ekki hafa viljað láta ályktunardrögin fara frá sér fyrr en að hafa rætt þau við forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna. 14. maí 2009 17:12