Innlent

Jón Bjarnason og Ragna Árnadóttir líklega fyrst út

Kristján Már Unnarsson skrifar
Líklegt þykir að Jón Bjarnason sitji aðeins skamman tíma á ráðherrastól og að hann hætti þegar nýtt atvinnuvegaráðuneyti verður stofnað, sem færi til Samfylkingar. Vinstri grænir fengju í staðinn ráðherra mannréttinda- og dómsmála og Ragna Árnadóttir hyrfi úr ríkisstjórn.

Það kom mörgum á óvart að byrjað skyldi á því að fjölga ráðherrum um tvo en var afsakað með því að ætlunin væri síðar á kjörtímabilinu að fækka ráðuneytum úr tólf niður í níu.

Fyrsta skipulagsbreytingin verður þegar viðskiptaráðuneyti Gylfa Magnússonar eflist og breytist í efnahags- og viðskiptaráðuneyti en heimildarmenn innan stjórnarflokkanna gera ráð fyrir að Gylfi sitji áfram sem ráðherra.

Næsta breyting verður sameining iðnaðarráðuneytis Katrínar Júlíusdóttur og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis Jóns Bjarnasonar í nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, að öllum líkindum á næsta ári. Líklegra þykir að nýja ráðuneytið lendi í höndum Samfylkingarinnar, og þá væntanlega Katrínar, og Jón hverfi úr ríkisstjórn. Dómsmálaráðuneyti Rögnu Árnadóttur myndi samhliða breytast í mannréttinda- og dómsmálaráðuneyti, sem kæmi þá í hlut Vinstri grænna um leið, og Ragna hætti sem ráðherra, til að jafnvægi héldist á milli stjórnarflokkanna í ráðherrafjölda. Umhverfisráðuneyti Svandísar Svavarsdóttur eflist með því að verða einnig ráðgefandi auðlindaráðuneyti en atvinnuvegaráðuneyti heldur þó áfram valdi yfir nýtingu auðlinda.

Þriðja og síðasta umferð skipulagsbreytinga yrði sameining heilbrigðisráðuneytis Ögmundar Jónassonar og félags- og tryggingaráðuneytis Árna Páls Árnasonar í velferðarráðuneyti og sameining samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis Kristjáns Möllers og mannréttinda- og dómsmálaráðuneytis í innanríkisráðuneyti. Líklegt er að þessar breytingar komi ekki til framkvæmda fyrr en við upphaf næsta kjörtímabils.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×