Jón Bjarnason og Ragna Árnadóttir líklega fyrst út Kristján Már Unnarsson skrifar 14. maí 2009 18:49
Líklegt þykir að Jón Bjarnason sitji aðeins skamman tíma á ráðherrastól og að hann hætti þegar nýtt atvinnuvegaráðuneyti verður stofnað, sem færi til Samfylkingar. Vinstri grænir fengju í staðinn ráðherra mannréttinda- og dómsmála og Ragna Árnadóttir hyrfi úr ríkisstjórn.Það kom mörgum á óvart að byrjað skyldi á því að fjölga ráðherrum um tvo en var afsakað með því að ætlunin væri síðar á kjörtímabilinu að fækka ráðuneytum úr tólf niður í níu.Fyrsta skipulagsbreytingin verður þegar viðskiptaráðuneyti Gylfa Magnússonar eflist og breytist í efnahags- og viðskiptaráðuneyti en heimildarmenn innan stjórnarflokkanna gera ráð fyrir að Gylfi sitji áfram sem ráðherra.Næsta breyting verður sameining iðnaðarráðuneytis Katrínar Júlíusdóttur og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis Jóns Bjarnasonar í nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, að öllum líkindum á næsta ári. Líklegra þykir að nýja ráðuneytið lendi í höndum Samfylkingarinnar, og þá væntanlega Katrínar, og Jón hverfi úr ríkisstjórn. Dómsmálaráðuneyti Rögnu Árnadóttur myndi samhliða breytast í mannréttinda- og dómsmálaráðuneyti, sem kæmi þá í hlut Vinstri grænna um leið, og Ragna hætti sem ráðherra, til að jafnvægi héldist á milli stjórnarflokkanna í ráðherrafjölda. Umhverfisráðuneyti Svandísar Svavarsdóttur eflist með því að verða einnig ráðgefandi auðlindaráðuneyti en atvinnuvegaráðuneyti heldur þó áfram valdi yfir nýtingu auðlinda.Þriðja og síðasta umferð skipulagsbreytinga yrði sameining heilbrigðisráðuneytis Ögmundar Jónassonar og félags- og tryggingaráðuneytis Árna Páls Árnasonar í velferðarráðuneyti og sameining samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis Kristjáns Möllers og mannréttinda- og dómsmálaráðuneytis í innanríkisráðuneyti. Líklegt er að þessar breytingar komi ekki til framkvæmda fyrr en við upphaf næsta kjörtímabils.
Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Sjá meira