Ögmundur er mættur í uppvaskið 8. febrúar 2009 11:18 Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra.
Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra og þingmaður Vinstri grænna, býst ekki við því að breytingar verði á forystu flokksins fyrir næstu þingkosningar. Þetta sagði Ögmundur í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Hann segir jafnframt að forysta flokksins njóti mjög mikils stuðnings. „Við myndum mjög sterka heild þessi hópur. Höfum mikil tengsl við grasrótina og lítum ekki eins mikið til foringja eins og menn gera í Sjálfstæðisflokknum þar sem menn koma sér undir hælnum og gera það sem foringjarnir segja," sagði Ögmundur. Hann sagði að Vinstri grænir hefðu fengið um 14% atkvæða í síðustu kosningum. Margt benti til þess að fylgið myndi aukast núna og endurnýjun yrði hjá Vinstri grænum þess vegna. Ögmundur sagði að það væri mikil breyting fyrir flokkinn að verða hluti af ríkisstjórn. Það væru alger umskipti að reyna að hafa áhrif úr stjórnarandstöðunni annars vegar og sitja í ráðuneyti þar sem ákvarðanir eru teknar hins vegar. Hann hefði viljað að aðstæður í þjóðfélaginu væru öðruvísi þegar að Vinstri grænir urðu aðilar að ríkisstjórn. Það hefði verið mikil veisla á Íslandi að undanförnu en Vinstri grænir væru eiginlega bara komnir í uppvaskið. Ögmundur sagði að niðurskurður í heilbrigðiskerfinu væri óhjákvæmilegur. Hann hefði hins vegar reynt að setja sér skýr markmið í þessum niðurskurði. Reynt yrði að draga ekki úr aðgengi sjúklinga. Reynt yrði að láta þetta ekki bitna á starfsfólki og reynt yrði að hlífa því starfsfólki sem hefði lágar tekjur og miðlungstekjur á kostnað þeirra sem bera mikið úr býtum. Í niðurskurði yrði reynt að horfa á að lækka lyfjakostnað og reyna að ná sátt um nauðsynlegar skipulagsbreytingar.
Mest lesið Segir Bjarna Benediktssyni að stinga tappa upp í „tengdasoninn“ Innlent „Ozempic tennur“ meðal aukaverkana þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Hvar eru þau nú? Lífið „Heppnir að enginn hafi dáið“ Innlent Ókunnugur næturgestur á Patreksfirði Innlent Segir „rasistum“ að leggja íslenska fánanum og fá sér sinn eigin Innlent Nawrocki sigraði með naumindum Erlent Verða boðaðir á fund lögreglu Innlent Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ Innlent Vopnaður heimagerðum eldvörpum Erlent Fleiri fréttir Frá Goðafossi að Gróttuvita með hundrað kíló í eftirdragi Slæmt að fá hret á varptíma Verða boðaðir á fund lögreglu Lögregla boðar tónleikahaldara á sinn fund Segir „rasistum“ að leggja íslenska fánanum og fá sér sinn eigin Þorleifur keilari hvergi nærri af baki dottinn Áhugi á Bandaríkjareisum snarminnkar Fordæmir vinnubrögð njósnaranna Segir Bjarna Benediktssyni að stinga tappa upp í „tengdasoninn“ „Heppnir að enginn hafi dáið“ Vill sjá upplýsingaspjald um kjörna fulltrúa í ráðhúsinu Ókunnugur næturgestur á Patreksfirði Nikótínpúðar vinsælastir „Ozempic tennur“ meðal aukaverkana þyngdarstjórnunarlyfja „Beið eftir því að eitthvað stórslys myndi gerast“ Sögulegur „köngulóavefur“, troðningur á tónleikum og stemning á degi sjómanna „Glatað að heyra af því að fólk hafi meitt sig“ Stærsta brautskráning í sögu skólans Einn lagður inn á sjúkrahús eftir tónleikana Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ „Hann vildi ekki klaga, klaga hvern þá?“ Stefnir í metkjörsókn í pólsku forsetakosningunum Viðvaranir vegna snjókomu og hríðar: „Þetta eru mikil vonbrigði“ Útlendingaandúð sé vinsæl leið til að marka sér stöðu á samfélagsmiðlum Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Fór ekki út úr húsi eftir afsögnina Troðningur í Laugardalshöll, óveður og sjómannadeginum fagnað Landsmálin, fiskveiðistjórnun og Ásthildur Lóa í Sprengisandi Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Sjá meira