Líklegt að Ómar verði bæjarstjóri 11. júní 2009 18:25 Ómar og Gunnar meðan allt lék í lyndi.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í Kópavogi vinna nú að því að bjarga meirihlutasamstarfinu, samkvæmt heimildum fréttastofu. Fullyrt er að margt sé uppi á borðinu, að í raun sé verið að semja nýjan samstarfssamning og að báðir aðilar muni gera kröfur á hinn. Hvað það felur nákvæmlega í sér er ekki ljóst, en fullvíst er talið að þess verði krafist að Gunnar I. Birgisson víki sem bæjarstjóri. Það þarf hins vegar ekki að fela í sér að hann hverfi af hinu pólitíska sviði í Kópavogi né heldur að hann hætti afskiptum af málefnum bæjarins. Samningar munu síðan meðal annars snúast um hver eigi að taka við sem bæjarstjóri og hve lengi, en líklegt er að það verði Ómar Stefánsson, oddviti Framsóknar, til að byrja með. Ekki dró til tíðinda á fundi bæjarráðs Kópavogs í dag, en Gunnar mun þó hafa vikið af fundi þegar fjallað var um málefni honum tengdum, þ.e.a.s. málefni Frjálsrar miðlunar sem er í eigu dóttur hans og eiginmanns hennar og fjallað var um í úttekt endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte. Fulltrúaráð Framsóknarflokksins kemur saman í kvöld og þar mun Ómar gera grein fyrir stöðu mála. Er búist við að tíðinda sé að vænta af þeim fundi, en hann hefst klukkan átta.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði Sjá meira