Höskuldur gagnrýnir orð seðlabankastjóra Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. september 2009 12:01 Már Guðmundsson sendi þingmönnum tóninn á fimmtudaginn. Mynd/ GVA. „
Ég geri alvarlegar athugasemdir við þennan málflutning seðlabankastjóra," segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði, þegar að hann útskýrði stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans á fimmtudaginn, að litlar líkur væru á því að stýrivextir lækkuðu á meðan að endurskoðun efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins væri óafgreidd. Seðlabankastjóri sagði að málið hefði strandað á Icesave deilunni og það ættu þeir sem véluðu um málið að hafa í huga. Formaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi þessi orð í kvöldfréttum RÚV í gær. Höskuldur segir að menn geti ekki lengur skýlt sér fyrir gagnrýni á aðgerðarleysi og ákvörðunarfælni með því að vísa í Icesave. Talað hafi verið um að stýrivextir myndu lækka eftir að skipt var um seðlabankastjóra í febrúar síðastliðnum. Hið sama hafi verið uppi á teningnum þegar ákveðið var að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Nú geti menn ekki skýlt sér á bak við Icesave. „Ég tel að almenningur kaupi ekki lengur að það sé einhverju öðru um að kenna en ákvarðanarfælni stjórnvalda," segir Höskuldur. Menn geti ekki lengur tengt stýrivaxtaákvarðanir við rök sem fást ekki staðist. Þá bendir Höskuldur á að Icesave málið sé fullklárað inni í þinginu. alþingi sé búð að segja sína skoðun á málinu og henni verði ekki breytt. Annað hvort falli Icesave samninganir eða Bretar og Hollendingar sætti sig við þá fyrirvara sem Alþingi settu.
Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Fleiri fréttir Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Sjá meira