Dæmdur fyrir árás í Fjölbrautaskóla Suðurlands Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 19. júní 2009 14:51 Árásin átti sér stað í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi Mynd/ GVA
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag 17 ára karlmann í eins mánaðar fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Árásin átti sér stað miðvikudaginn 18. febrúar á þessu ári í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Maðurinn réðist á skólafélaga sinn og sló hann ítrekað með grjóthnullungi í höfuðið með þeim afleiðingum að hann hlaut eymsli og bólgu vinstra megin á hvirfli og langvarandi höfuðverk næstu vikur á eftir. Í áverkavottorði kom fram að fórnarlambið hafi verið að ganga með félaga sínum fyrir utan Vallaskóla á Selfossi sama dag og árásin var gerð. Ákærði hafi gengið að honum án ástæðu og farið að koma við hann. Brotaþoli hafi orðið fúll yfir þessu og sagt eitthvað við ákærða sem hafi svarað á pólsku. Klukkutíma síðar hafi fórnarlambið verið statt á 3. hæð Fjölbrautaskólans með einum vini sínum. Ákærði hafi þá komið með tveimur vinum sínum og sest við hliðina á brotaþola. Ákærði hafi farið í burtu og komið aftur og byrjað að lemja hann með lófastórum steini í höfuðið vinstra megin, átta til tíu sinnum. Af skýrslu ákærða fyrir lögreglu kom fram að ákærði hafi talið sig vera áreittan og hafi það verið ástæða árásarinnar. Verður það þó ekki metið ákærða til refsilækkunar. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ákærði játaði brot sitt greiðlega fyrir lögreglu og dómi. Þá var ákærði sautján ára þegar árásin átti sér stað. Þá hefur ákærða ekki verið gerð refsing áður. Hins vegar var um einbeittan ásetning ákærða að ræða og er ekkert sem má reikna honum til refsilækkunar utan þess sem að ofan segir. Ákærði var dæmdur í fangelsi í einn mánuð en með vísan til þess að ákærði játaði brot sitt greiðlega fyrir lögreglu og dómi svo og ungs aldurs hans þótti rétt að skilorðsbinda refsinguna og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Sjá meira