Eins og í ekta spennusögu 12. júní 2009 03:00 Steinunn með tölvuna, sem hafði m.a. að geyma mynd af dóttursyni hennar, Einari Steini Kristjánssyni. fréttablaðið/stefán „
Ég er gjörsamlega í skýjunum. Þetta var alveg eins og í ekta spennusögu," segir rithöfundurinn Steinunn Jóhannesdóttir. Fartölva í eigu hennar er komin í leitirnar eftir að henni var stolið úr bíl hennar fyrir mánuði síðan, eins og Fréttablaðið greindi frá. Í tölvunni voru drög að skáldsögu sem hún hefur verið að vinna að síðustu ár sem fjallar um sögulegar persónur á 17. öld. Steinunn segir að greinin í Fréttablaðinu hafi skipt sköpum við endurheimt tölvunnar. „Hringt var í listamann hér í borginni og því hvíslað að honum að tölvan hans væri í kjallara í Þingholtunum og þangað gæti hann sótt hana. Umræddur maður kannaðist ekki við að tölva hefði horfið frá sér og allt var símtalið heldur ruglingslegt og hann sleit því," segir hún. „Þá var hringt aftur og sagt að tölvan tilheyrði rithöfundi. Sá sem hringdi sagðist hafa keypt hana fyrir nokkra þúsundkalla á bar í miðbænum, en hefði svo séð í Fréttablaðinu að hún innihéldi mikil verðmæti fyrir eigandann. Hann hefði haft vonda samvisku af því að vera með gripinn og vildi skila honum og bæði umræddan listamann að sækja hana." Að sögn Steinunnar komst listamaðurinn ekki til að sækja hana og í staðinn náði samstarfskona hans í hana, opnaði hana og sá nafn Steinunnar. „Ég get ekki lýst þakklæti mínu og gleði yfir þessum málalyktum. Ég þakka Fréttablaðinu sem sagði frá innbrotinu og hreyfði við samvisku kaupanda tölvunnar og kaupandanum fyrir að setja í gang atburðarás sem að lokum skilaði henni til mín. Síðast en ekki síst þakka ég þeim góðu listamönnum, karlmanninum og ungu konunni, sem lögðu á sig leit að verkfæri kollega þótt við séum ekki hvert öðru kunnug nema í sjón," segir hún.
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Bíó og sjónvarp Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira