Búast má við þingi á milli jóla og nýárs 10. desember 2009 05:00 Mynd/Anton Brink
Ólíklegt er talið að Alþingi takist að ljúka meðferð allra mála sem ríkisstjórnin telur mikilvægt að verði að lögum fyrir áramót áður en jólahátíðin gengur í garð. Því er útlit fyrir að þingfundir verði milli jóla og nýárs. Starfsáætlun þingsins er farin úr skorðum en samkvæmt henni átti önnur umræða fjárlaga að vera í dag, þriðja umræða á þriðjudag og síðasti þingfundur fyrir jólaleyfi eftir viku. Fjárlagafrumvarpið er enn til meðferðar í fjárlaganefnd en vonir standa til að önnur umræða geti farið fram á mánudag. Óvíst er hvenær þriðja umræðan getur farið fram. Stjórnarandstaðan hefur sett fram kröfur í sextán liðum um verklag við meðferð Icesave-málsins á milli annarrar og þriðju umræðu. Ljóst er að sú vinna tekur nokkurn tíma en að sama skapi er óljóst hvenær málið kemst til þriðju umræðu. Alls hefur Alþingi 61 stjórnarfrumvarp til meðferðar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins leggur ríkisstjórnin ríka áherslu á að um helmingur þeirra verði að lögum fyrir áramót. Fjárlög, skattalagabreytingar, Icesave og margvíslegar breytingar á lögum um félagsleg réttindi eru þar á meðal. Í fyrra lauk þingið störfum fyrir jólaleyfi hinn 22. desember. Alþingi sat síðast að störfum milli jóla og nýárs árið 1994. Umræðum um fjárlög ársins 1995 lauk á næturfundi aðfaranótt Þorláksmessu en síðan var þingfundum frestað til þriðja dags jóla. Kom það þá saman til þess að afgreiða frumvörp um lánsfjárlög, breytingar á skattalögum og ráðstafanir í ríkisfjármálum. Auk þess var samþykkt að Ísland yrði meðal stofnaðila að Alþjóðaviðskiptastofnun GATT, en frestur til þess rann út um áramótin. - bþs, pg
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira