Innlent

Glaðheimasölu verði rift vegna vanefnda

Kópavogsbær
Kópavogsbær Mynd/GVA

„Bærinn hefur hvorki fengist til þess að gefa út yfirlýsingu um hvenær hann hyggist afhenda hið selda né gert ráðstafanir sem eru forsenda afhendingarinnar," segir í bréfi lögmanns Kaupangs eignarhaldsfélags til Kópavogsbæjar.

Í bréfi lögmannsins, Gests Jónssonar, er boðuð riftun á kaupum Kaupangs á byggingarrétti og lóðaréttindum við Glaðheimaveg. Gengið var frá samningnum milli jóla og nýárs árið 2006. Í bréfi Gests segir að bærinn hafi átt að afhenda fyrstu lóðirnar byggingarhæfar í september 2007 og þær síðustu í desember 2008. Kaup­angur keypti tvo þriðju hluta svæðisins og Smáratorg ehf. þriðjung. Samtals var söluverðið um 6,5 milljarðar króna.

„Skyldi seljandi á sinn kostnað sjá um að fjarlægja þau mannvirki sem voru á lóðunum við gerð kaupsamningsins. Við afhendingu skyldu vera fyrir hendi götur, stígar og veitukerfi þannig að hægt væri að hefja byggingarframkvæmdir," segir í bréfi Gests sem kveður ekkert af þessu hafa verið gert heldur sé landið enn notað undir hesthúsabyggð. Tilraunir til að finna lausn með fulltrúum bæjarins hafi verið árangurslausar.

Þá segir Gestur að Kaupangur hafi þegar greitt 500 milljónir króna vegna samningsins. Því hafi fylgt fjármögnunarkostnaður auk annarra gjalda auk þess sem lagt hafi verið í vinnu við undirbúning og hönnun. Samningum verði rift og bóta krafist leiði viðræður ekki til niðurstöðu.

Bæjarráð Kópavogs segir hins vegar að Kaupangur beri ábyrgð á þeim töfum sem orðið hafi.

„Kópavogsbær hefur gert það sem í hans valdi stendur til þess að klára skipulagsvinnuna," segir í svarbréfi sem Sigurjón Ingvason lögmaður skrifar Gesti Jónssyni fyrir hönd bæjarins.

Sigurjón segir Kópavogsbæ enn aðeins hafa fengið greidda vel innan við tíu prósent af þeirri upphæð sem bænum beri að gatnagerðargjöldum meðtöldum. Kaupangur hafi þannig vanefnt samninginn.

„Kópavogsbær mótmælir því að umbjóðandi yðar [Kaupangur] geti velt kostnaði sínum yfir á bæinn og sér í lagi er því mótmælt að bærinn beri nokkurn kostnað af þeirri áhættu sem umbjóðandi yðar tók við val á fjármögnunarleið," skrifar Stefán sem kveður bæinn þó til í viðræður um skil á lóðunum þannig að Kaupangur fái innborgun sína endurgreidda.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×