Innlent

Bankastjórarnir hafa ekki svarað Jóhönnu

Seðlabankastjórarnir þrír hafa enn ekki svarað bréfi sem forsætisráðherra sendi þeim á mánudag, þar sem þess er farið á leit að þeir láti af embætti og geri starfslokasamning við ríkið. Frestur sem gefinn var til að svara bréfinu rennur út á morgun.

Frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingu og endurskiplagningu á stjórn og starfsemi Seðlabanka Íslands verður tekið fyrir í þingflokkum í dag og lagt fram á Alþingi fyrir helgi. Í frumvarpinu er meðal annars gert ráð fyrir að skipaður verði einn faglegur bankastjóri og að gerðar verði breytingar á peningamálastefnunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×