Innlent

Jóhanna Guðrún: „Var orðin frekar svartsýn“

Jóhanna Guðrún á sviðinu í Moskvu.
Jóhanna Guðrún á sviðinu í Moskvu.

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir var í skýjunum eftir að ljóst var að hún komst áfram upp úr undankeppni Eurovison nú í kvöld. Vísir náði tali af henni rétt eftir að kepnninni lauk og sagðist hún ekki geta verið ánægðari.

„Það var náttúrulega okkar markmið allan tímann að komast upp úr þessari forkeppni. Nú er það búið að gerast og það sem gerist eftir þetta er bara aukalegt," sagði Jóhanna í samtali við Vísi.

Ísland var síðasta landið sem lesið var upp og voru margir heima í stofu orðnir ansi vonlitlir um að við færum áfram. En hvað með Jóhönnu sjálfa? Varstu orðin svartsýn?

„Auðvitað var ég það. Þegar það voru bara þrjú laus sæti eftir og við ekki inni varð ég stressuð. Það voru svo mörg lög sem mér fannst góð ekki komin áfram og því var ég orðin svolítið svartsýn og hugsaði að kannski væri þetta bara ekkert hægt. Þetta var því mjög taugatrekkjandi en líka bara ennþá skemmtilegra."

Jóhanna segist ekki hafa fundið fyrir neinu stressi á sviðinu og henni hafi liðið mjög vel. Atriðið gekk eins og í sögu og ekkert óvænt kom upp á.

Það vakti einnig athygli að salurinn í Moskvu var mjög hrifinn af framlagi Íslands. Þegar einungist átti eftir að lesa eitt land hrópaði salurinn í kór „Iceland, Iceland"

„Ég fann fyrir gríðarlegum stuðningi í salnum og það er þvílíkur plús. Maður nærist nefnilega svo á þeirr orku og það er mjög jákvætt."

Jóhanna sagði að lokum að nú væri bara að undirbúa sig undir úrslitakvöldið þar sem ætlunin er að standa sig jafnvel og í kvöld.




Tengdar fréttir

Annasamur dagur hjá Jóhönnu - myndir

Meðfylgjandi má meðal annars sjá myndir af Jóhönnu Guðrúnu og fríðu föruneyti hennar í Moskvu. Í dag hvíldi hópurinn sig fram yfir hádegi og byrjaði að huga að förðun, hárgreiðslu og útlitinu áður en hann lagði af stað í Ólympíuhöllina klukkan 15 að staðartíma eða klukkan 11 að íslenskum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×