Innlent

Ríkisstjórn á bekk spilltra

Helga Sigrún Harðardóttir
Helga Sigrún Harðardóttir
„Margir voru hneykslaðir á því að vera settir á lista með al Kaída. En ríkisstjórnin sjálf skipar sér á bekk með spilltum og vanþróuðum þjóðum sem ættu að standa íslensku þjóðinni langt að baki," sagði Helga Sigrún Harðardóttir Framsóknarflokki.

Hún hvatti ráðherra til afsagna en varði megintíma ræðu sinnar í að lýsa áhyggjum af atvinnuleysinu og alvarlegum fylgifiskum þess; vanlíðan, sjúkdómum og hugsanlega örorku.

- bþs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×