Landhelgisgæslan frestar uppsögnum 21. janúar 2009 15:24 Georg Kr. Lárusson. MYND/GVA
Fyrirhugaðar uppsagnir hjá Landhelgisgæslu Íslands hafa verið dregnar til baka. Þetta kemur fram á heimasíðu Gæslunnar en þar tilkynnir Georg Kr. Lárusson forstjóri starfsmönnum sínum um að uppsögnunum hafi verið frestað.Til stóð að segja upp 20 til 30 starfsmönnum hjá stofnuninni. „Að undanförnu hefur verið unnið að því í samstarfi við ykkur starfsmenn og stéttarfélög ykkar að endurskipuleggja störf, breyta starfshlutfalli, leita tímabundinna starfa á sérsviði starfsmanna erlendis og fleira," segir Georg. „ Þessar aðgerðir eru nú þegar farnar að bera nokkurn árangur og verður þeim haldið áfram. Þá verður enn frekar reynt að finna tímabundin verkefni erlendis fyrir tæki og áhafnir Landhelgisgæslunnar. Því er þessi ákvörðun tekin nú. Áfram verður unnið að endurskoðun og endurskipulagningu á rekstri og þær aðgerðir sem nú þegar hefur verið ákveðið að ráðast í og fram komu í greinargerð sem send var ykkur og stéttarfélögum sl. fimmtudag, munu koma til framkvæmda. Ég mun upplýsa ykkur eftir föngum um framgang mála sem vonandi mun skýrast á næstu vikum," segir forstjórinn ennfremur. Í tilefni af þessu lýsir SFR, stéttarfélag í almannaþágu, sem hafði mótmælt uppsögnunum, yfir ánægju sinni með það að uppsagnir hafi verið dregnar til baka og áéttar að í efnahagsþrenginum þeim sem nú ganga yfir sé launafólk ekki látið bera byrgðirnar með því að kasta þeim út í atvinnuleysi.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fleiri fréttir Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Sjá meira