Varaformaður Samfylkingarinnar vill kosningar í vor 21. janúar 2009 11:40 Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar. ,,
Ástandið er grafalvarlegt og ég get sagt þér að í þinghúsinu, þá skynja allir mikla reiði almennings", segir Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar sem vill að gengið verði til kosninga í vor. Áður hafa forystumenn Samfylkingarinnar talað fyrir kosningum en þeir hafa þó ekki nefnt nákvæma tímasetningu. Meðal þeirra eru ráðherrarnir Björgvin G. Sigurðsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir og þingmennirnir Ellert B. Schram, Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Katrín Júlíusdóttir. Eðlilegt að boða til kosninga í vor Ágúst Ólafur segir að það sé staðreynd að verulega hafi gengið á traust almennings til stjórnvalda. ,,Ég hugsa að stjórnvöld fái ekki nauðsynlegan vinnufrið fyrr en að afloknum kosningum. Mér finnst hins vegar líka mikilvægt að benda á að stjórnvöld hafa unnið mörg þörf og erfið verk á undanförnum vikum." Aðspurður hvort að líklegt sé að gengið verði til kosninga vor segir Ágúst Ólafur að afstaða sín sé skýr. ,,Ég hygg að margir meti stöðuna á sama hátt. Hvaða stjórnmálaskoðanir sem menn aðhyllast. Eðlilegast sé að boða til kosninga og að um það sé mynduð þverpólitísk sátt." Staða margra verri en í haust Ágúst Ólafur segir að margt bendi til þess að reiði almennings sé að aukast og hún sé í réttu hlutfalli við þá staðreynd að staða fólks nú er verri en hún var í haust og í mörgum tilvikum séu aðstæður fólks mjög erfiðar. Þegar rýnt sé í stöðuna bendi flest til þess að öldurnar muni ekki lægja nema með nýjum kosningum. Lýðræðisumbætur mikilvægar ,,Að því leyti tel ég að kosningaspurningin sé eitt brýnasta úrlausnarefni okkar nú og lýðræðismálin almennt. Það er full ástæða finnst mér, til að taka þar allar góðar hugmyndir upp á borðið. Lýðræðisumbætur hafa ávallt verið með mikilvægustu stefnumálum Samfylkingarinnar og því má flokkurinn ekki gleyma," segir varaformaðurinn.
Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Sjá meira