Hátekjuskatturinn miðast við árstekjur 18. júní 2009 02:45
Átta prósenta hátekjuskattur, sem byrjað verður að innheimta um mánaðamótin, leggst á allar launatekjur umfram 700 þúsund krónur, samkvæmt frumvarpi sem lagt verður fyrir þingið á næstu dögum. Skatturinn verður innheimtur mánaðarlega en endurskoðaður í lok árs og þá reiknaður af meðalmánaðartekjum, eða heildartekjum umfram 4,2 milljónir á þessum sex mánuðum. Hafi tekjur fólks verið breytilegar eftir mánuðum, og það farið undir 700 þúsunda markið einhverja mánuði, á það þannig rétt á endurgreiðslu á næsta ári enda hafi það verið ofrukkað um hátekjuskatt. Þetta segir Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra og fyrrverandi ríkisskattstjóri og ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu. Ekki er miðað við meðaltekjur hjóna í þessu tilliti. Breytingarnar sem kveðið verður á um í frumvarpinu gilda aðeins til loka þessa árs. Þá verða gerðar breytingar á fjármagnstekjuskatti. Hann verður hækkaður úr tíu prósentum í fimmtán prósent af árlegum fjármagnstekjum, sem eru vaxtatekjur, arður af hlutabréfum, söluhagnaður og leigutekjur. Frítekjumark fjármagnstekna verður hins vegar hækkað í 250 þúsund krónur, úr engu. Fjármagnstekjum hjóna er dreift jafnt á þau. Einnig stendur til að hækka tryggingagjald, sem atvinnuveitendur greiða í atvinnutryggingasjóð, í því skyni að styrkja sjóðinn vegna aukins atvinnuleysis. Þá á að leggja sérstakan skatt á sætindi og gosdrykki. Með skattahækkununum hyggjast stjórnvöld reyna að brúa 20 til 25 milljarða fjárlagagat þessa árs. Áætlað er að hátekjuskatturinn skili um 2,5 milljörðum á þessu ári og um fjórum milljörðum á ársgrundvelli. Þá á breytingin á fjármagnstekjuskattinum að skila um sex milljörðum í ríkiskassann og hækkun tryggingagjaldsins um tólf milljörðum á ársgrundvelli.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Fleiri fréttir Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sjá meira