Hæpið að skila láninu frá AGS Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. janúar 2009 12:10 Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði við Háskóla ÍSlands.
Hugmyndir um að skila láninu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eru mjög hæpnar, að mati Þorvalds Gylfasonar hagfræðiprófessors við Háskóla Íslands. En þessa hugmynd hafa forystumenn Vinstri grænna viðrað að undanförnu. „Ef láninu yrði skilað að þá væri gengi krónunnar miklu ótryggara og miklu líklegra til þess að falla um skeið þegar byrjað verður að slaka á gjaldeyrishöftunum," segir Þorvaldur. Hann bendir hins vegar á að ekki hafi komið fram hvers konar breytingar Vinstri grænir leggi til á efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar, sem gerð var í samkomulagi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Hann geti því ekkert tjáð sig um þann þátt málsins.Of takmörkuð efnahagsáætlun „Ég er þeirrar skoðunar að efnahagsáætlunin sé prýðileg svo langt sem hún nær en stjórnvöld þurfa að skýra hana betur fyrir almenningi og styrkja hana. Efnhagsáæltunin er bara áætlun um lágmarks bjargráð. En menn þurfa að gera miklu meira en það allra minnsta sem þeir komast af með og ríkisstjórnin hefur ekki gert næstum því nóg af því sem gera þarf til viðbótar við áætlunina," segir Þorvaldur. Þorvaldur segir að ríkisstjórnin þyrfti að taka miklu skýrar á endurskipulagningu bankanna. Enn sem komið sé mjög lítið vitað um starf skilanefndanna og ríkisstjórnin hafi ekki sagt hvað hún ætli fyrir um nýju bankana. „Hún þarf að leggja fram áætlun um það hvað um þá verður og hversu lengi þeir eiga að vera í ríkiseigu og hvað tekur við," segir Þorvaldur. Hann segir að ríkisstjórnin þurfi einnig að búa til umhverfi utan um þann gríðarlega vanda sem sé að steypast yfir gríðarlegan fjölda heimila og fyrirtækja. Ekki hafi enn komið fram hvað ríkisstjórnin sé að hugsa um þau mál.Forystumenn í stjórnsýslunni og viðskiptalífinu dragi sig í hlé „Það þarf ekki að vera," segir Þorvaldur þegar hann er spurður um það hvort stjórnarslit og kosningar í vor yrðu til þess að dýpka efnahagsvandann. Þorvaldur segir að skipta þurfi um stjórnendur í Seðlabankanum, Fjármálaeftirlitinu, í sumum ráðuneytanna og í lögreglunni. „Og svo þarf einnig að skipta um fólk í viðskiptalífinu í mjög stórum stíl. En það er auðvitað ekki verkefni handa ríkisstjórninni. Því að meðvirkni viðskiptalífsins í vitfirringunni sem leddi til bankahrunsins var þannig vaxin að það er alveg nauðsynlegt að viðskiptalífið taki sér tak og skipti um fólk í brúnni," segir Þorvaldur.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira