Segir upplýsingum lekið til þess að koma á sig höggi 28. janúar 2009 18:41 Gunnar Páll Pálsson
Gunnar Páll Pálsson, formaður VR segir að upplýsingum hafi vísvitandi verið lekið úr gamla Kaupþingi til að koma á hann höggi. Gunnar Páll hefur verið gagnrýndur harðlega fyrir störf sín fyrir bankann og átti meðal annars sæti í lánanefnd þegar breska auðkýfingnum Tchenguiz var veitt tugi ef ekki hundruð milljarða króna lán stuttu fyrir bankahrun. Eins og fram kom í fréttum stöðvar tvö í síðustu viku voru lánin veitt gegn veði í breskum fasteignafélögum í eigu Tjengis. Félögin stóðu illa þegar lánin voru veitt og verðgildi þeirra rýrnað enn frekar síðan þá.Fjármálaeftirlitið rannsakar nú lánveitingarnar en lánin voru veitt á sama tíma og lánsfjármarkaðir voru almennt að lokast. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, sat í lánanefnd bankans á þeim tíma þegar lánin voru samþykkt. „Þetta eru einn af stærri viðskiptavinum bankans sem var í meðferð hjá bankanum. þannig að ég tel ekki rétt að tjá mig um einstök viðskipti. Það eru veð þarna á bak við en ég vísa því bara á bankann að svara því." Í Kastljósi í gær fullyrti Kristinn Hrafnsson, fréttamaður að Kaupþing hafi lánað Tchenguiz alls 280 milljarða króna síðasta árið fyrir hrun. Peningarnir hafi verið fluttir í skattaskjól á bresku Jómfrúreyjum. Þessir peningar, ef upphæðin er sett í samhengi, myndu duga til að greiða eftirstandandi skuld ríkissins vegna Icesave sem og hallarekstur ríkissjóðs á þessu ári. Gunnar Páll sem nú stendur í miðjum formannsslag segir að andstæðingar sínir séu vísvitandi að reyna gera störf hans fyrir gamla Kaupþing tortryggileg.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Sjá meira