Opna miðstöð vegna efnahagsástandsins 31. janúar 2009 17:27
Miðstöð, þar sem aðstoð verður veitt í samræmi við neyðarvarnaskipulag Rauða krossins, verður sett á laggirnar á næstu vikum til að bregðast við þörf sem hefur skapast í samfélaginu í kjölfar efnahagsástandsins. Boðið verður upp á sálrænan stuðning, ráðgjöf og námskeið til að takast á við breyttar aðstæður fólks í landinu. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi Rauða krossins í gærkvöldi. Í tilkynningu frá Rauða krossinum kemur einnig fram að árlegum formannafundi hafi verið flýtt um tvo mánuði til að sameina viðbrögð allra 50 deilda félagsins vegna efnahagsástandsins. Á fundinum sem lauk fyrir stundu var samþykkt eftirfarandi yfirlýsing: „Yfir samfélaginu hvílir skuggi alvarlegustu efnahagskreppu sem þjóðin hefur staðið frammi fyrir um áratugaskeið eða í meira en hálfa öld . Afleiðingar hennar eru ekki með öllu fyrirséðar en þó er ljóst að fjöldi einstaklinga og fjölskyldna standa á tímamótum, horfa fram á atvinnumissi og erfiðleika. Þörfin fyrir framlag Rauða kross Íslands hefur sjaldan verið meiri. Rauði krossinn er viðbragðsaðili í neyð og hefur byggt upp kerfi þar að lútandi, veitt fjöldahjálp og sálrænan stuðning. Félagið mun við þessar aðstæður stíga fram og veita fólki aðstoð til að takast á við breyttar aðstæður í samfélaginu. Mikilvægi þeirrar starfsemi sem nú þegar er sinnt í deildum félagsins á eftir að aukast verulega á næstunni. Starfið er víðfeðmt og fjölbreytt og nær nú þegar til margra hópa sem standa höllum fæti. Sjálfboðaliðar Rauða krossins búa yfir mikilli reynslu sem mikilvægt er að nýta til hins ítrasta við núverandi aðstæður. Deildir félagsins um allt land eru tilbúnar til samstarfs við stjórnvöld og félagasamtök í þessu sambandi og hefur fjórðungur deildanna þegar hafið slíka samvinnu."
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Fleiri fréttir Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Sjá meira