Innlent

Löggan í Eyjum hljóp uppi fíkniefnasala

Frá Vestmannaeyjum. Mynd/Óskar P. Friðriksson
Frá Vestmannaeyjum. Mynd/Óskar P. Friðriksson
Lögreglan í Vestmannaeyjum hljóp í gærkvöldi uppi fíkniefnasala á þrítugsaldri sem kom með Herjólfi til Eyja með kókaín að andvirði tæplega einnar milljónar.

Við reglubundið eftirlit með komu Herjólfs í gærkvöldi hafði lögreglan afskipti af ökumanni bifreiðar og farþega hennar vegna gruns um fíkniefnamisferli. Bifreiðin var færð á lögreglustöðina þar sem eigandi hennar, sem jafnframt var ökumaður hennar, samþykkti leit í henni.

Þegar fíkniefnahundurinn Luna var að leita í bifreiðinni tók ökumaður bifreiðarinnar til fótanna og hljóp frá lögreglustöðinni. Lögreglumenn veittu honum eftirför og sáu hvar hann henti frá sér pakka á leiðinni. Maðurinn var síðan hlaupinn uppi eftir að hafa veitt honum eftirför austur Faxastíg og niður á Vestmannabraut þar sem hann var handtekinn og færður á lögreglustöðina.

Í pakkanum reyndust vera 40 til 50 grömm af ætluðu kókaíni. Maðurinn viðurkenndi við skýrslutöku að eiga efnin og hafa ætlað þau til sölu í Eyjum. Farþegi sem í bifreiðinni var neitaði allri aðild að málinu. Áætlað söluandvirði efnisins er að sögn lögreglu milli 800 þúsund til ein miljón króna.

Ökumaðurinn er jafnframt grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann og farþeginn, sem báðir eru á þrítugsaldri, voru færðir í fangageymslu vegna rannsóknar. Skýrslutökum verður framhaldið í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×