Innlent

Rólegt hjá lögreglunni

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri hefur talsvert snjóað síðustu daga.

Færð innan bæjar er erfið fyrir fólksbíla og hefur lögreglan þurft að aðstoða nokkra í morgun.

Þá er óvært á þjóðvegum í kringum Akureyri en verið er að moka þá vegi nú. Annars var tíðindalaust fyrir norðan í nótt og lögreglan á Selfossi talaði um ein rólegustu jól í manna minnum.

Fyrir vestan er ágætis veður og færðin er hin þokkalegasta. Búið er að moka á milli þéttbýlisstaða en ekki er búið að moka Djúpið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×