Innlent

Tekinn með ætluð fíkniefni á Akureyri

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á Akureyri í gærkvöldi eftir að þrjátíu grömm af hvítu efni, líklega anfetamíni eða kókaíni, fundust í fórum hans við húsleit lögreglunnar. Málið er í rannsókn, en grunur leikur á að efnið hafi veri ætlað til sölu. Efnagreiningu er ekki lokið og því er ekki ljóst hversu sterkt efnið er, eða í hversu marga skammta það hefði dugað. Þrír sérþjálfaðir fíkniefnalögreglumenn eru nú í lögregluliðinu á Akureyri og sér til aðstoðar hafa þeir fíkniefnahund.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×