Innlent

ESB er hluti af lausn á bráðavanda

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóhanna segir að ESB aðildarumsókn sé hluti af lausninni við bráðavandanum. Mynd/ GVA.
Jóhanna segir að ESB aðildarumsókn sé hluti af lausninni við bráðavandanum. Mynd/ GVA.
Aðildarumsókn að Evrópusambandinu er hluti af lausn á þeim bráðavanda sem Íslendingar glíma við um leið og hún leggur grunninn að traustri framtíð og er leiðarljós stöðugleika inn í framtíðina, sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í stefnuræðu sinni í kvöld. „Á því þarf atvinnulífið nú að halda og slík umsókn mun jafnframt endurvekja traust alþjóðasamfélagsins og erlendra fjárfesta á Íslandi," sagði Jóhanna.

Jóhanna segir að á hverjum degi greiði íslenskar fjölskyldur kostnaðinn af því að standa utan Evrópusambandsins í formi vaxtagreiðsla, sem séu margfalt hærri hér en í Evrópusambandinu og í formi hærra verðs á matvælum og öðrum nauðsynjum sem myndu lækka mikið við Evrópusambandsaðild.

„Verðtryggingin er líka þungur baggi sem er fórnarkostnaður sem fylgir íslensku krónunni. Fyrirtækin í landinu greiða kostnaðinn í formi einna hæstu vaxtabyrði í heimi, gríðarlegs óstöðugleika í gengi og mikillar verðbólgu. Það er okkar skylda að búa íslensku atvinnulífi jafn góð eða betri rekstrarskilyrði en í helstu samkeppnislöndum. Á því veltur framtíðaruppbygging atvinnuveganna sem er um leið einn megingrundvöllur velferðar heimila og fjölskyldna í landinu," sagði Jóhanna.

Jóhanna sagðist þó leggja ríka áherslu á að Evrópusambandið væri ein og sér engin töfralausn. Það væru engar töfralausnir til við þeim bráðavanda sem Íslendingar stæðu frammi fyrir en þörf væri á vegvísi að stöðugleika fyrir framtíðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×