Innlent

Þingfundir að loknu jólaleyfi

Fundum Alþingis var frestað 22. desember síðastliðinn.
Fundum Alþingis var frestað 22. desember síðastliðinn. MYND/Fréttablaðið/stefán
Alþingi kemur saman að nýju í dag eftir jólaleyfi þingmanna sem hófst þegar þingi var frestað, 22. desember síðastliðinn.

Þingfundur hefst klukkan 13.30 með óundirbúnum fyrirspurnatíma sem forsætisráðherra, menntamálaráðherra, fjármálaráðherra, umhverfisráðherra og viðskiptaráðherra verða viðstaddir.

Önnur mál á dagskrá þingsins eru meðal annars frumvarp félags- og tryggingamálaráðherra um greiðslur til líffæragjafa og frumvarp um breytingu ýmissa lagaákvæða sem varða sölu áfengis og tóbaks. - ovd



Fleiri fréttir

Sjá meira


×