Innlent

Eigandi búinn að urða hrossin

Skylt er að hafa tilsjónarmann með hrossum, búi eigandinn ekki á staðnum.
Skylt er að hafa tilsjónarmann með hrossum, búi eigandinn ekki á staðnum.

Búið er að urða hross sem voru dauð í skurði og við heyrúllur á bænum Ánastöðum á Mýrum. Héraðsdýralæknir og búfjáreftirlitsmaður höfðu farið í eftirlitsferð á staðinn í vor. Þeir sáu þá mörg dauð hross í skurði sem hálfpartinn hafði verið grafið yfir og hræ af folaldi hafði verið troðið niður við heyrúllur sem gefnar höfðu verið. Hræ af einu hrossi var einnig í skurði sem var fullur af vatni.

„Við fórum þarna á laugardaginn síðasta, því þá gat eigandi hrossanna verið með okkur, og fórum yfir stöðu mála,“ segir Gunnar Gauti Gunnarsson, héraðs­dýralæknir Borgarfjarðar- og Mýrasýslu. Hann segir að eigandinn hafi þá, að boði yfirvalda, verið búinn að ganga sómasamlega frá hræjum hrossanna sem hann hafði sjálfur lógað. Ástand hrossanna sem eftir lifðu sé viðunandi. Eigandinn hafi bent á fimm hross úr hópnum sem hann hyggist lóga í haust. Mönnum sé leyfilegt að lóga eigin hrossum og urða sómasamlega í eigin heimalandi.

„Við munum mæta aftur á staðinn í haust til eftirlits,“ segir Gunnar Gauti. „Svo þarf eigandi hrossanna að útvega sér tilsjónarmann þar sem hann býr sjálfur ekki á staðnum. Sá þarf að hafa daglegt eftirlit með hrossunum í vetur.“- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×