Velferðin ráði regluverki fjármálanna 22. júlí 2009 05:30 mannlíf Árni Páll vill skoða samspil bóta og lægstu launa. fréttablaðið/stefán
Félagsmálaráðherra segir að sjónarmið velferðarþjónustunnar eigi að ráða því hve lausan taum fjármálamarkaðurinn fær. Frumvarp um endurskoðun atvinnuleysistrygginga verður lagt fram í haust. Niðurskurðarvinnan er hafin. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir að endurskipuleggja þurfi það kerfi sem lýtur að fjármálum og markaði hér á landi. Allt of lengi hafi það verið þannig að velferðarmálin hafi enga aðkomu haft að því kerfi. Því verði að breyta þannig að velferðarsjónarmiðin ráði meiru. Þegar kreppi að hafi sýnt sig að velferðarkerfið þurfi að borga. „Það er náttúrlega einfaldlega þannig þegar horft er til baka á þessar erfiðustu kreppur sem við höfum gengið í gegnum, að þær eru vegna hruns á fjármálamarkaði. Þær eru ekki vegna hruns á vinnumarkaði. Við höfum alltaf verið að nálgast hlutina út frá því að það þurfi að passa að hafa svo opinn og sveigjanlegan vinnumarkað, sem er alveg rétt, og haft áhyggjur af því hvort við ýtum undir atvinnuleysi með þessu eða hinu. En allir þessir mælikvarðar verða hálfhjákátlegir þegar horft er á það gríðarlega tjón sem orðið hefur,“ segir Árni Páll. Hann segir samfélagslegt tjón gríðarlega mikið og efast um að regluverk og áhættumat hafi verið með eðlilegum hætti á fjármálamarkaðnum. Árni spyr hvort ekki sé eðlilegt að félagsmálaráðuneytið komi meira að því að marka leikreglur markaðarins þar sem velferðarkerfið beri kostnaðinn við samfélagshrunið. Á milli ráðuneytanna sem sinna markaðnum og markaðsins sjálfs geti myndast óeðlilega náið samband. Þá þurfi að hafa talsmenn annarra sjónarmiða við borðið, þar hljóti menn að horfa til þess ráðuneytis sem fer með velferðarmálin. „Aftur og aftur lendum við í kreppu vegna þess að menn missa sjónar á því sem mestu skiptir, í einhverri bólukenndri fjármálastarfsemi. Alltaf er það velferðarkerfið sem þarf að taka við. Sjónarmið velferðarþjónustunnar ættu að ráða því hversu lausan tauminn við gefum fjármálamarkaðnum á hverjum tíma. Áhættumatið á að vera víðara og stærra, það á ekki alltaf að einblína á þennan eina markað; fjármálamarkaðinn. Reynslan er sú að hrun á honum veldur gríðarlegu samfélagstjóni annars staðar hjá varnarlausu fólki. Og menn hafa kannski alltaf verið með skökk módel í hausnum í þessu áhættumati, menn hafa bara verið að hugsa: hver er áhættan fyrir bankana? ekki: hver er áhættan fyrir þjóðarbúið, hver er áhættan fyrir atvinnustigið og blásaklaust fólk sem missir vinnuna?“ ÁRNI PÁLL ÁRNASON Félagsmálaráðherra segir að regluverk fjármálamarkaðar hafi of mikið miðast við markaðinn sjálfan. Velferðarkerfið þurfi að borga þegar hrunið verður og því sé eðlilegt að taka einnig tillit til þess.FRÉTTABLAÐIÐ/anton
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Fleiri fréttir Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira