Þjóðfundinum slitið 14. nóvember 2009 17:15
Þjóðfundinum var slitið klukkan fimm en það voru meðal annars tónlistarmennirnir KK, Björgvin Halldórsson og Gunnar Þórðarson ásamt fleirum sem luku fundinum með fjöldasöng. Þar var meðal annars sungið lagið „Viltu með mér vaka í nótt" og fleiri lög. Fjölmiðlamaurinn Maríanna Friðjónsdóttir segir að fundurinn hafi gengið vonum framar og er þegar hægt að skoða afrakstur hans á heimasíðu þjóðfundarins. Fimmtán hundruð manns mættu á fundinn og var unnið á yfir 160 borðum að því að móta nýtt Íslands. „Leikurinn var gerður til að heyra rödd þjóðarinnar og við teljum að útkoman endurspegli hana,“ segir Lárus Ýmir Óskarsson, einn forsvarsmanna Þjóðfundarins sem fór fram í Laugardalshöllinni. Fyrir hádegi fjölluðu þjóðfundargestir um það hvaða gildi við Íslendingar ættum að hafa að leiðarljósi og varð heiðarleiki þar efstur á blaði. Þar á eftir kom jafnrétti, virðing og réttlæti. Eftir hádegi var rætt um framtíðarsýn fyrir land okkar og samfélag og var unnið út frá nokkrum meginstoðum, sem fundurinn hafði valið, svo sem menntamálum, fjölskyldunni, atvinnulífinu, umhverfismálum og jafnfrétti. Útkoman og öll gögn eru nú aðgengileg til nánari úrvinnslu á: http://www.thjodfundur2009.is. /nidurstodur/framtidarsyn-themu/ Um fimmtán hundruð manns tóku þátt í fundinum. Unnið var í 162 hópum og var miðað við að níu manns væru í hverjum þeirra. Lárus Ýmir segir að krafturinn, gleðin, einbeitingin og stemmningin á fundinum hafi verið gríðarleg. „Fólk var logandi af áhuga,“ segir hann. Hugmyndin að Þjóðfundinum fæddist í byrjun júní og á sjálfum fundinum voru um 300 sjálfboðaliðar sem unnu við tæknivinnu, upplýsingamiðlun og fleira.
Mest lesið Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Innlent Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs Innlent „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Innlent Eldur í íbúð við Snorrabraut Innlent Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Innlent Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Sjá meira