Segir hugmyndir um upptöku aflaheimilda skapa óróa 29. október 2009 15:30
Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ gagnrýndi harðlega hugmyndir um upptöku aflaheimilda á aðalfundi LÍÚ í dag og sakaði stjórnvöld um að skapa óróra innan sjávarútvegsins með því að kasta fram svo óútfærðum hugmyndum. Hann sagði óvissuna samfara þeim þegar hafa valdið tjóni. Adolf sagði að það væri nauðsynlegt að hverfa án tafar frá upptökuleiðinni. Raunsæi og heilbrigð skynsemi yrði að ráða för. Ræðan í heild er birt á vefsíðu LÍÚ. „Eftir að kvótakerfinu var komið á og sérstaklega með tilkomu frjálsa framsalsins 1991 tók við mikið umbyltingarskeið í íslenskum sjávarútvegi. Viðvarandi taprekstur vék fyrir hagræðingu og arðsemi. Það er á grundvelli þessarar umbyltingar að stærstur hluti íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja mun standa af sér þær hamfarir sem á þeim hafa dunið á undanförnu," sagði Adolf í ræðu sinni á aðalfundi útvegsmanna í dag. Í ræðu sinni gerði Adolf einnig að umtalsefni þá neikvæðni sem einkennt hefur umræðu um sjávarútveginn í kjölfar efnahagshrunsins fyrir réttu ári og vitnaði máli sínu til stuðnings m.a. til ummæla félagsmálaráðherra og forseta ASÍ í síðustu viku og spurði: „Kæru félagar, sér einhver glitta í roðann í austri í þessum orðum?" Aðildarumsókn Íslands að ESB var einnig á meðal umfjöllunarefnis í ræðu formannsins. Adolf sagði m.a.: „Afstaða okkar byggir á þeim grundvallarsjónarmiðum að Íslendingar fari einir með forræði yfir fiskimiðunum, hafi samningsforræði við skiptingu veiðiréttar úr deilistofnum og tali eigin máli á vettvangi alþjóðastofnana. Mikilvægt er að tryggja að arður af nýtingu auðlinda skili sér til íslensks samfélags." Hann lauk umfjöllun um ESB með þessum orðum: „Ég er þess fullviss að þjóðin mun aldrei samþykkja aðildarsamning sem felur í sér afsal á yfirráðum yfir fiskveiðiauðlindinni."
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Fleiri fréttir Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Sjá meira