Innlent

Seðlabankafrumvarp fer í viðskiptanefnd

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur dregið frumvarp sitt um breytingar á lögum um Seðlabankann til baka. Tvö frumvörp komu fram sem voru samhljóða utan þess að frumvarp Jóhönnu gerði ráð fyrir því að málið færi fyrir efnahags- og skattanefnd en frumvarp þriggja þingmanna Frjálslynda flokksins gerir ráð fyrir að málið fari fyrir viðskiptanefnd.

Í þinginu í dag dró Jóhanna sitt frumvarp til baka þannig að ekki þurfti að kjósa um í hvora nenfndina málið færi. Það kemur því í hlut viðskiptanefndar að fjalla um málið.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×