Innlent

Ákærður fyrir ítrekaðar mútutilraunir

Andrés Pétur Rúnarsson, ákærður fyrir ölvunarakstur og ítrekaðar mútutilraunir.
Andrés Pétur Rúnarsson, ákærður fyrir ölvunarakstur og ítrekaðar mútutilraunir.

Veitingahúsaeigandinn Andrés Pétur Rúnarsson hefur verið ákærður fyrir ölvunarakstur án þess að hafa ökuleyfi auk þess sem hann reyndi ítrekað að bera fé á lögregluþjóna gegn því að þeir myndu láta málið niður falla. Fyrir vikið er Andrés einnig ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni.

Andrés var handtekinn í ágúst árið 2007 þegar hann var að aka bifreið sinni vestur Hálsasveitarveg á Vesturlandi. Lögreglan reyndi þá að stöðva hann en Andrés á að hafa virt stöðvunarljós þeirra að vettugi en endað á að keyra niður umferðarmerki og þaðan út af veginum.

Þá er honum einnig gefið að sök að hafa ítrekað reynt að múta tveimur lögregluþjónum í lögreglubifreiðinni á meðan ekið var með hann á stöðina þar sem skýrsla var tekinn af honum. Mútugreiðslurnar voru gegn því að lögreglumennirnir létu málið niður falla. Þeir tóku ekki við greiðslunum, heldur kærðu hann fyrir tilraunina.

Andrés átti heldur viðburðarríkan dag í héraðsdómum landsins, en samkvæmt DV í dag þá var hann einnig ákærður fyrir skattalagabrot. Það mál var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×