Innlent

Að minnsta kosti 13 skip við gulldepluveiðar

Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Fjölveiðiskipin eru aftur byrjuð gulldepluveiðar suður af landinu eftir brælu í gær. Að minnsta kosti þrettán skip eru nú á Grindavíkurdýpi og fara brátt að berast aflatölur.

Sú nýbreytni er við þessar veiðar að nú meta sjómenn aflann í rúmmetrum, fremur en tonnum, eins og vaninn hefur verið. Rúmmetrarnir gefa hærri aflatölur en tonnin, því fréttastofunni er kunnugt um skip, sem landaði hátt í fjórtán hundruð rúmmetrum, sem reyndust vera 950 tonn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×